tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Miðflokkurinn hefur stutt Grindvíkinga, fyrirtæki og íbúa í bænum og mun gera það áfram. Við munum að sjálfsögðu styðja þetta frumvarp en við höfum meiri áhyggjur af því sem út af stendur. Það er ýmislegt sem út af stendur; fjárhagur Grindavíkurbæjar, við söknum þess að það hafi ekki verið framlengt í heimildum jöfnunarsjóðs til að greiða til Grindavíkurbæ og höfum áhyggjur af því að ríkisstjórnin hyggist sofa á verðinum hvað það varðar. Ýmislegt fleira mætti nefna en ég vil einungis nefna varðandi framtíðina og ítreka að það er mikilvægt að stjórnvöld taki ákvarðanir í tíma og láti þetta ekki bara líða hjá vegna þess að áhrifin af þessu munu ekki vara næstu mánuði heldur næstu ár eða áratugi, á Grindvíkinga alla.