stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023. Í þessum lögum voru sameinuð ákvæði um stefnumörkun í samgöngu-, byggða- og húsnæðismálum til að samhæfa betur stefnumörkun á málefnasviði innviðaráðuneytisins. Jafnframt voru til samræmis gerðar tilteknar breytingar á ákvæðum viðkomandi laga um stefnumörkun á sviði skipulags- og sveitarstjórnarmála. Samhliða þessu voru felld brott þágildandi lög um samgönguáætlun, lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og ákvæði um stefnumótun á sviði húsnæðismála í lögum um húsnæðismál.
Samkvæmt lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skal ráðherra einu sinni á hverju kjörtímabili hið minnsta leggja fyrir Alþingi tillögur til þingsályktunar um samgöngustefnu, húsnæðisstefnu, byggðastefnu, landsskipulagsstefnu og stefnu ríkisins um málefni sveitarfélaga til 15 ára, auk fimm ára aðgerðaáætlunar á hverju sviði fyrir sig. Þingsályktunartillögur þessar, að undanskilinni stefnu í málefnum sveitarfélaga, skal vinna undir yfirumsjón þriggja ráða; samgönguráðs, byggðamálaráðs og húsnæðis- og skipulagsráðs, sem hvert um sig er skipað tveimur fulltrúum ráðherra og einum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Þær breytingar sem urðu á ráðuneytum og verkaskiptingu þeirra 15. mars síðastliðinn kalla á breytingu á þessum lögum. Til innviðaráðuneytisins færðust þá fjarskiptamál en húsnæðis- og skipulagsmál fluttust til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Eftir þessar breytingar eru á málefnasviði innviðaráðuneytisins samgöngur, fjarskipti, byggðamál og sveitarstjórnarmál. Lögin þurfa að endurspegla þessar breytingar og er það efni þessa frumvarps.
Í frumvarpinu er lagt til að í stað þess að vísa til stefnumótunar í tilteknum tilgreindum málaflokkum innviðaráðuneytisins verði vísað með almennum hætti til stefnumörkunar á sviði innviða. Þannig verður komist hjá því að breyta þurfi lögunum ef málaflokkar flytjast á milli ráðuneyta.
Frumvarpið felur jafnframt í sér enn frekari samhæfingu stefnumörkunar innviðaráðuneytisins með því annars vegar að gefa kost á að sameinaður verði í einu stefnuráði undirbúningur allrar stefnumörkunar á málefnasviði ráðuneytisins og hins vegar að stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða, að því marki sem ekki er kveðið á um gerð þeirra í öðrum lögum, verði sameinaðar í eina stefnu og aðgerðaáætlun. Þannig getur t.d. ein samræmd innviðastefna og aðgerðaáætlun komið í stað sérstakrar samgöngustefnu, byggðastefnu og fjarskiptastefnu. Eftir sem áður verður byggt á þeim megináherslum sem legið hafa til grundvallar áætlunum á sviði innviða til þessa, þ.e. að stuðla að greiðum, hagkvæmum, öruggum og umhverfislega sjálfbærum samgöngum, traustum fjarskiptainnviðum og jákvæðri byggðaþróun. Brýnt er sem fyrr að framsetning stefnumörkunarinnar sé samræmd og að horft sé til samspils og samhæfingar við aðrar áætlanir þar sem þær eru til staðar. Þá er gætt sérstaklega að samhæfingu við fjármálaáætlun og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar sem lagðar eru fram á grundvelli laga um opinber fjármál.
Að lokum felur frumvarpið í sér breytingar á lögum um húsnæðismál og skipulagslögum sem nauðsynlegar eru vegna flutnings húsnæðis- og skipulagsmála úr innviðaráðuneytinu í félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Voru þær breytingar unnar í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Verði frumvarpið að lögum mun það ekki hafa bein áhrif á tekjur eða útgjöld ríkisins. Ég tel hins vegar að það muni auka hagkvæmni og skilvirkni stefnumörkunar á málefnasviði innviðaráðuneytisins og jafnframt stuðla að markvissari undirbúningi hennar. Með aukinni samhæfingu gefst kostur á að hámarka árangur og jákvæð áhrif stefnumótunar samfélaginu til hagsbóta.
Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.