156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.

271. mál
[11:30]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og hef fullan skilning á þessu frumvarpi sem kemur til af breyttri skipan mála og eðlilega þurfa lögin sem fjalla um það sem hæstv. ráðherra var að flytja hér að taka mið af því. Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. innviðaráðherra þegar hann er að leggja jafnvel til að leggja niður samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun, það er svona sagt að það komi vel til greina, og kalla það innviðaáætlun, hvort það sé ekki dálítið sérkennilegt að kalla það innviðaáætlun þegar hvorki húsnæðismál né skipulagsmál eru þar, sem eru grundvöllur eiginlega alls hins og samstarfsins við sveitarstjórnarstigið þar sem sveitarstjórnarmálin eru jú í ráðuneytinu. Er ekki í besta falli sérkennilegt að leggja fram slíka áætlun?

Svo langar mig einfaldlega að heyra álit hæstv. ráðherra á því hvort hann telji að húsnæðisuppbyggingu sé betur fyrir komið inn í ráðuneyti sem fjallar um félagsmál, tryggingamál, almannatryggingar, en ekki í ráðuneyti sem er í samskiptum við sveitarfélögin og með samtenginguna við samgöngumál, en á liðnum árum hefur verið gert mikið úr því að það sé mikilvægt að tengja húsnæðisuppbygginguna við uppbyggingu í samgöngumálum. Mig langar að heyra álit hæstv. ráðherra á þessu tvennu.