stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi innviðaráðuneyti þá kemur fram, eins og kom fram í ræðu minni hér áðan, að stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði innviða, að því marki sem ekki er kveðið á um gerð þeirra í öðrum lögum, geti verið sameinaðar í eina stefnu og aðgerðaáætlun. Þannig geti t.d. innviðastefna komið fram í stað þessarar sérstöku samgöngustefnu og byggðastefnu og fjarskiptastefnu. Það eru þessar stefnur sem myndu fara undir innviðastefnu, þ.e. samgöngustefna, byggðastefna og fjarskiptastefna. Varðandi húsnæðismál og skipulagsmál þá er orðið til ráðuneyti sem heitir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Það var tekið út úr innviðaráðuneytinu. Ég hét um tíma samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra en af því að ég fékk fjarskiptin inn, sem eru mikilvægir innviðir, var ákveðið að halda því nafni áfram. Innviðaráðuneytið myndi alltaf fjalla um þau málefni sem ættu við um mig en það breytir því ekki að húsnæðismál eru undir öðru ráðuneyti. Vissulega eru húsnæðismál mikilvægir innviðir en þau eru í öðru ráðuneyti. Það er bara spurning hvernig þú skilgreinir innviði á hverjum tíma og þetta er þá skilgreining á því verksviði sem innviðaráðuneytið myndi fjalla. Ég sé í sjálfu sér ekkert að því að taka húsnæðismál út úr ráðuneyti innviða ef það er samkomulag innan ríkisstjórnar að gera það. En það breytir því ekki að félags- og húsnæðismálaráðuneytið — húsnæðismál eru ekki félagsleg mál, þau eru það að hluta til, stórum hluta til, félagslegt húsnæði o.s.frv., þannig að það eru líka samlegðaráhrif þar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. En það breytir því ekki að þetta er svona, núna er þetta lagt fram með þessum hætti og við komum þessar lagabreytingar út af þessum breytingum. Þá er verið að tala um málaflokka sem eru undir innviðaráðuneytinu. Ég vona að ég hafi náð að svara hv. þingmanni hvað þetta varðar en vissulega eru húsnæðismál mikilvægir innviðir.