stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Nei, þetta svaraði mér nú ekki fyllilega. Ég var eiginlega að inna ráðherrann eftir því hvort það væri ekki sérkennilegt að leggja fram innviðaáætlun sem innihéldi ekki uppbyggingu í húsnæðismálum. Svo var ég einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra hvað honum fyndist um það að húsnæðismálin væru ekki hluti af innviðaráðuneytinu. Þegar þessi mál voru flutt saman þá voru auðvitað fjarskiptin flutt út og ég fagna því að þau séu komin til baka þar sem þau hafa auðvitað talsverða samlegð líka við uppbyggingu samgangna og húsnæðismála, en allt grundvallast þetta þó á skipulagsmálum. Það varð svolítil umfjöllun um það þegar Skipulagsstofnun fluttist til innviðaráðuneytisins hvort hún ætti þar heima. Ég er algjörlega á þeirri skoðun eftir að hafa verið lengi í stjórnsýslunni að hún sé á réttum stað þar, þar sem sveitarfélögin fara jú með skipulagsvaldið í landinu og þess vegna er fullkomlega eðlilegt að stofnunin sé í sama ráðuneyti og sveitarstjórnarstigið tilheyrir líka. Og uppbygging húsnæðis, samgangna og fjarskipta byggist jú öll á skipulagsákvörðunum sveitarfélaga, landsskipulagsstefnu sem unnin er af ráðuneytinu og Skipulagsstofnun. Allt er þetta grundvöllur þess að byggja upp innviði. Þess vegna ítreka ég þá spurningu mína um hvað hæstv. ráðherra finnist um það að vera búinn að missa Skipulagsstofnun, sem mér finnst enn sérkennilegra, vægast sagt, að sé komið fyrir í félagsmálaráðuneytinu en ekki í innviðaráðuneytinu eða sveitarstjórnar- og samgönguráðuneytinu eða hvað menn vilja kalla það, einfaldlega vegna þess að hún á heima með öllum hinum málunum. (Forseti hringir.) Það liggur í augum uppi. Það er búin að vera feiknarleg samstaða um það síðastliðin ár. (Forseti hringir.) Mun þetta hjálpa til við uppbyggingu húsnæðis, að færa húsnæðismálin og skipulagsmálin yfir í annað ráðuneyti?