stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Varðandi hvað mér finnst um að missa skipulagsmálin, þá er því til að svara að ég hef ekki litið svo á að ég sé að missa eitt eða neitt. Í fyrsta lagi var þetta strax ákveðið í upphafi þegar ég kem inn í ráðuneytið. Ég var skipaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 21. desember síðastliðinn og það var aldrei gert ráð fyrir því að ég myndi nokkurn tíma hafa húsnæðis- og skipulagsmál þannig að ég er ekki að missa neitt svo það liggi fyrir. Hvort mér finnist sérkennilegt að húsnæðismálin fari yfir í félags- og húsnæðismálaráðuneyti, sameinist því, þá finnst mér það ekki skrýtið vegna þess að húsnæðismál eru að stórum hluta, hvað varðar aðkomu ríkisins, félagsmál, mjög stórum hluta, félagslegt húsnæði og uppbygging félagslegs húsnæðis sem síðasta ríkisstjórn var gjörsamlega að vanrækja. Það sem mér finnst hins vegar sérkennilegra í þessu máli, mun sérkennilegra, er það að fjarskiptin skyldu ekki hafa verið í innviðaráðuneytinu. Það er mjög sérkennilegt. Það er alveg klárt mál og við getum öll verið sammála um það að fjarskipti eru mikilvægir innviðir en þau voru ekki í innviðaráðuneytinu. Húsnæðismál, eins og ég ítreka aftur, varðandi aðkomu ríkisins, eru mjög mikilvægt félagslegt mál, að ríkið stuðli að því að tekjulágir hópar geti eignast húsnæði. Þetta er mál sem er algjörlega búið að vanrækja, ekki bara af síðustu ríkisstjórn heldur á undanförnum árum og frá því löngu fyrir hrun. Núna ætlar þessi ríkisstjórn að hefja átak í húsnæðismálum og sjá til þess að tekjulágir hópar samfélaginu geti eignast húsnæði eða eignast leiguhúsnæði. Það er eitt af okkar stóru málum. Þannig getum við náð niður verðbólgunni og vaxtastiginu sem er forgangsmál þessarar ríkisstjórnar og vinna að því af fullum krafti sem verkstjórn. Það er ástæðan fyrir því að við komumst til valda. Vanræksla síðustu ríkisstjórnar var hrópandi. Ég veit ekki hve oft ég fór í ræðustól að tala um það hvað þau ætluðu að gera í húsnæðismálum. Þannig að mér finnst það ekki skrýtið og ég tel að þessu sé vel komið fyrir í þessu ráðuneyti núna. (Forseti hringir.) Ég var aldrei missa neitt en við erum að minnka sérkennilegheitin með því að fjarskiptin eru að koma nú inn í innviðaráðuneytið. Það var það sem var sérkennilegt.