stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég ætla að hafa nokkur orð um þetta frumvarp. Eins og ég sagði í andsvari við hæstv. ráðherra fyrr í dag finnst mér fullkomlega eðlilegt og eiginlega nauðsynlegt að breyta lögum þegar menn eru búnir að hræra upp í kerfinu og stokka upp hvaða málaflokkar tilheyra hvaða ráðuneyti sem er. Það er eðlilegt þar af leiðandi að koma fram með mál sem samsvarar þeirri hugmyndafræði.
Hæstv. ráðherra fór aðeins inn á að það mætti hugsa sér að leggja fram eina áætlun í staðinn fyrir samgönguáætlun, byggðaáætlun eða fjarskiptaáætlun, nefndi reyndar ekki stefnumörkun í sveitarstjórnarmálum. Allt var þetta undirbúið á síðustu tveimur kjörtímabilum og sett í lagalegan búning með þessum hætti, hefur ekki verið með svona skýrum hætti áður. Fyrsta stefna í sveitarstjórnarmálum var lögð fram á þarsíðasta kjörtímabili og önnur á síðasta kjörtímabili og hefur aldrei verið gert áður. Uppbygging í málum sem tengjast — þ.e. að geta nýtt það að sveitarstjórnarstigið er nátengt samgönguuppbyggingunni og húsnæðismálunum var auðvitað gert með þeim hætti að það var farið í samstarf við sveitarfélög á síðasta kjörtímabili um uppbyggingu í húsnæðismálum.
Við höfum líka verið um langt árabil að byggja upp norrænt húsnæðiskerfi sem hefur gengið það vel, þrátt fyrir hér furðulegar yfirlýsingar hæstv. ráðherra um vanrækslu og að nú eigi loksins að fara að byggja, þegar um 4.300 lánveitingar hafa verið veittar nú þegar inn í almenna íbúðakerfið sem er norrænt húsnæðismódel fyrir þá sem þurfa stuðning við að ná að vera í leiguhúsnæði — þar er árangurinn frábær. Leiguverð er þar umtalsvert lægra. Í síðustu fjármálaáætlun — samkvæmt því sem við vitum best núna gilda enn þau markmið sem við settum fram í þeirri fjármálaáætlun í fyrra þar sem ekki voru sett fram ný markmið af hálfu nýrrar ríkisstjórnar — er meiningin að byggja um 1.000 íbúðir í þessu kerfi á næstu fimm árum. Þá verða þessar íbúðir orðnar tæplega 9.000 á þessum næstu fimm árum og vonandi verður síðan eitthvað haldið áfram. Það er spurning hvort það þurfi meira en 10.000 íbúðir inn á þennan hluta markaðarins.
Á sama tíma byggðum við upp hlutdeildarlán sem er stuðningur þegar ríki og sveitarfélög koma saman og styðja fólk við að eignast húsnæði. Þar er þegar búið að veita heimildir til byggingar yfir 1.000 heimila, yfir 1.000 heimili sem eru búin að eignast sitt eigið húsnæði eða eru að eignast sitt eigið húsnæði með þessum stuðningi. Allt í allt eru þetta nú þegar á fimmta eða sjötta þúsund sem hæstv. ráðherra kallaði fullkomna vanrækslu og ekkert hefði verið gert. Á síðustu sjö árum voru byggðar 25.000 íbúðir á Íslandi. Að mati Seðlabankans hefur húsnæðis- og byggingargeirinn verið þaninn allan tímann. Við vorum í vandræðum vegna þess að við þurftum að byggja meira í erfiðu umhverfi hárra stýrivaxta, og hárra vaxta þar af leiðandi, takmarkað lóðaframboð hjá sveitarfélögunum, og þess vegna var farið í þá vegferð að gera samninga við sveitarfélögin af hálfu ríkisins sem ég vona að þá ekki núna innviðaráðherrann heldur félagsmálaráðherrann muni halda áfram við, og vonandi tekur félagsmálaráðherrann samtal við samgönguráðherrann um það til þess að tengja þá uppbyggingu við uppbyggingu samgangna sem er lykilatriði og hefur verið bent á og eru til að mynda mjög góðar fyrirmyndir frá Finnlandi sem ég fór á sínum tíma og heimsótti áður en við fórum af stað í þessa vegferð að búa til samkomulag við sveitarfélögin um uppbyggingu húsnæðis. Allt þetta kallar ný ríkisstjórn að ekkert hafi verið gert.
Ef við skoðum fjármálaáætlun og þá fyrirhuguðu íbúðauppbyggingu sem þar er sögð þá er hún bara minni, hæstv. ráðherra, hún er ekki meiri. Það eina sem við höfum þó er að þeir mælikvarðar og þau markmið sem við settum í síðustu fjármálaáætlun halda vonandi. Það eru um 1.000 íbúðir á ári sem á að byggja á næsta ári í þessum kerfum, fyrir utan síðan almenna markaðinn sem á að byggja yfir það sem þarf að byggja.
Þó að húsnæðismál séu ekki hluti af þessu frumvarpi þá tengjast þau óneitanlega vegna þess að í 7. gr. er fjallað um að einhvers staðar verður að koma fyrir áætlunum um uppbyggingu húsnæðismála. Einhvers staðar verður að koma fyrir áætlunum um hvernig á að vinna landsskipulagsstefnu. Þess vegna er brugðið á það ráð hér að búa til einhvers konar bandorm úr þessu frumvarpi þar sem er verið að breyta ekki bara lögum um áætlanir á sviði innviðaráðuneytisins, sem varða fyrst og fremst samgöngur, fjarskipti, byggðamál og sveitarstjórnarmál, þó að sveitarstjórnarmálin séu ekki í þessu því að þau heyra undir sveitarstjórnarlögin.
Það er líka verið að breyta hér lögum um húsnæðismál. Það er líka verið að breyta lögum um skipulagsmál. Þau heyra nú á þessu kjörtímabili undir félagsmálaráðuneytið, eins sérkennilega og það hljómar í eyrum mjög margra sem sáu fyrir sér að innviðir væru uppbygging húsnæðismála, samgangna, samtenging þeirra, fjarskipti, já, ég held að það sé kostur að þau séu komin aftur í þetta ráðuneyti. Ég held að það sé betra. Við vorum reyndar á þeim tíma langt komin með uppbyggingu ljósleiðarakerfis hringinn í kringum landið og kláruðum það á síðasta kjörtímabili, eitt fárra landa í heimi, kannski það eina sem er búið að tengja ljósleiðara inn í hvert einasta hús í dreifbýli, eða nánast hvert einasta, það er 99,9 eitthvað, sem var held ég gríðarlega markvert og gott skref og ákvörðun sem við tókum á sínum tíma og varð m.a. til þess að við fengum á árinu 2018 eða 2019 þann sess að vera talin af Alþjóðafjarskiptasambandinu sú þjóð sem væri komin lengst í fjarskiptamálum, annars vegar út af því að ríkisvaldið hafði beitt sér fyrir því að tengja ljósleiðara inn í allt dreifbýli, sem hvergi annars staðar hafi verið gert, og hins vegar vegna þess að fjarskiptafyrirtækin okkar hafa verið að byggja upp fjarskiptakerfi í gríðarlega öflugri samkeppni og mikilli markaðssetningu, jafnvel gengið fulllangt í einstaka þéttbýlum þar sem var kannski búið að grafa þrjá skurði og óþarflega dýrt. En við tókum einnig á því innan þess Evrópulagaverks sem hægt var, þannig að fjarskiptin eru að því leyti í mjög góðum málum.
Það eru fyrst og fremst netöryggismálin sem við höfum verið að takast á við að bæta á undanförnum árum, höfum náð gríðarlegum árangri í því. Nýjasta skrefið hjá nýrri ríkisstjórn, sem ég held að sé klókt, er að færa CERT-IS yfir í varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, gera það hluta af þessum varnarmálum því að netógnir eru það. Þær voru áður hluti af fjarskiptamálunum en eru það ekki lengur sem málaflokkur sem er þá hjá innviðaráðherranum. Ég held að það hafi verið gott skref þar sem netógnir eru kannski þær ógnir sem eru líklegastar að geta valdið tjóni.
En ég vildi fyrst og fremst koma hingað upp í ræðu bara til að benda á þennan fáránleika sem ég vil halda fram, að taka húsnæðis- og skipulagsmál út úr innviðaráðuneytinu og setja inn í félagsmálaráðuneyti. Ég geri mér alveg grein fyrir því og ég hef ekkert á móti því að hver ríkisstjórn móti sér sína stjórnarstefnu um það hvernig þau vilja koma fyrir málum og að einstaka ráðherrar — í þessu tilviki væntanlega vegna þess að formaður Flokks fólksins hefur viljað hafa meiri umsvif hjá sér en bara félagsmálaráðuneytið, sem er reyndar umtalsvert ráðuneyti, að þá séu húsnæðis- og skipulagsmál sett þangað inn líka. Ég vil bara benda á að það hljómar svo sérkennilega. Þegar sveitarstjórnarstigið er í innviðaráðuneytinu og skipulagsmálin og skipulagsvaldið er hjá sveitarfélögunum þá er það svo sérkennilegt, þó svo að húsnæðismál séu að hluta til félagsmál, það er alveg rétt, og húsnæði, það að eiga möguleika á eigin heimili, hvort þú sért að leigja það á sanngjörnu verði eins og í þessu norræna húsnæðiskerfi sem við komum á, og ég ætla bara að segja að við í Framsókn komum á, vegna þess að við höfðum þann málaflokk á hendi mjög lengi — þegar sagt er að ekkert hafi verið byggt er það hins vegar staðreynd að á síðustu sjö árum voru byggðar 25.000 íbúðir á Íslandi. Hvergi á byggðu bóli í Evrópu var verið að byggja jafn mikið og á Íslandi á þessum tíma. Það dugði bara ekki til vegna þess að okkur fjölgaði svo mikið. Ég sé ekki að ný ríkisstjórn ætli að gera jafn mikið á næstu sjö árum. Ég sé það ekki. Ekki í þeim áætlunum sem þau hafa birt og ég sé ekki að það sé líklegra til árangurs að færa húsnæðis- og skipulagsmál frá innviðaráðuneytinu yfir í félagsmálaráðuneytið til að auka þann hraða. Ég sé það ekki og ég vil segja það hér í pontu Alþingis, svo það sé skráð, ég sé það ekki. Þegar við munum líta til baka, einhvern áratug héðan í frá, og bera saman uppbygginguna sem var frá 2017–2024 og svo þá uppbyggingu sem nú verður eftir þessa uppstokkun þá efast ég að það muni nást viðlíka árangur. Ég efast um það.
Ég vona sannarlega að það náist jafnvægi á húsnæðismarkaðnum og ég vona sannarlega að almenni markaðurinn, þegar vextir og kostnaður við húsbyggingar náist þar af leiðandi niður og nægjanlegt lóðaframboð náist fram hjá sveitarfélögunum, ekki síst þeim stóru hér á höfuðborgarsvæðinu, þá náist jafnvægi á þennan markað og það þurfi ekki að byggja svona svakalega mikið. Ég vona það sannarlega en ég er alveg sannfærður um að það verður ekki byggt jafn mikið. Það verður ekki vegna þess að húsnæðis- og skipulagsmál voru færð yfir í félagsmálaráðuneytið. Það er ekki hvati. Það er augljóslega ekki hvati. Það hlýtur að vera hvati að hafa skipulagsmálin hjá ráðuneyti sem fer með sveitarstjórnarstigið. Það hlýtur að vera. Það hlýtur að vera augljóst ef þú ætlar að samtvinna uppbyggingu í samgöngum við uppbyggingu í húsnæðismálum, eins og við höfum verið að ræða hérna með höfuðborgarsáttmálann, Keldnalandið, að það eigi ekki að byggja upp — það á að byggja upp í takt við uppbyggingu samgangna og húsnæðismála, þá hlýtur það að vera nokkuð augljóst að það sé betra að þessir málaflokkar séu í sama ráðuneytinu heldur en í tveimur. Það er alveg hægt að gera þetta öðruvísi en það hlýtur að vera auðveldara. Það var alla vega meiningin í upphaflegum pælingum sem var almennt vel tekið. En þetta frumvarp er afleiðing af þessari uppstokkun. Þá þarf að stokka upp hvernig á að leggja fram stefnumarkandi áætlanir og ég geri engar athugasemdir við það frumvarp. Ég vildi bara tala um forsendurnar fyrir því sem hér er verið að gera og ég ætla að efast um að þær skili þeim árangri sem hér er haldið fram.