stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og er honum hjartanlega sammála. Ég held að hæstv. ríkisstjórn sé að gera mikil mistök með þessari tilfærslu. Mig langaði, virðulegur forseti, að fá að fletta aðeins upp í reynslu- og viskubrunni hv. þingmanns sem hefur nú töluverða reynslu hér. Ég minnist þess nefnilega hafa komið hérna inn á þing 2016 og þá myndaði Sjálfstæðisflokkur ríkisstjórn með flokki sem hét Björt framtíð, framtíð þeirra var reyndar ekki mjög björt, og flokki sem heitir Viðreisn. Þá var félags- og húsnæðismálaráðherra Þorsteinn Víglundsson fyrir Viðreisn. Ég sat í sveitarstjórn í Mosfellsbæ og hafði þar lengi farið fyrir skipulagsmálum og ég minnist þess nefnilega að við áttum, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og kannski fleiri, gott samstarf við Þorsteinn Víglundsson einmitt við að reyna að taka svolítið utan um þennan málaflokk. Ég minnist þess að áður fór t.d. Eygló Harðardóttir fyrir þessum málaflokki, þ.e. húsnæðis- og félagsmálum, var að reyna að gera mikið á sínum tíma en var í stökustu vandræðum vegna þess að þessi málaflokkur var dreifður svo vítt og breitt. Auðvitað heyrir hann fyrst og fremst undir sveitarfélögin. Að því sögðu er ég hjartanlega ósammála því sem kom fram í máli hæstv. ráðherra hér áðan, að tala um það eins og húsnæðismál séu félagsmál. Auðvitað er einhver smá hluti af því félagslegt húsnæði en fyrst og fremst er þetta auðvitað ein af stærstu atvinnugreinum okkar og svo er það mikilvægi þess að hér sé til húsnæði og þá auðvitað tengist þetta sveitarstjórnarmálunum. En ég minnist þess til að mynda að Þorsteinn Víglundsson hafi lagt áherslu á að fara í vinnu með sveitarfélögum og reyna að ná utan um það að koma þessum málaflokki meira á einn stað. Sú ríkisstjórn lifði ekki lengi eins og flestum er ljóst og við tók ríkisstjórn þar sem við Sjálfstæðismenn vorum að vinna með Framsókn og Vinstri grænum og þá var einmitt skipað þetta innviðaráðuneyti. Þannig að mig langaði aðeins að fletta upp í viskubrunni hv. þingmanns (Forseti hringir.) varðandi forsögu þess að það er búið að gera ýmsar tilraunir með þennan málaflokk og færa svolítið milli ráðuneyta.