156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.

271. mál
[11:55]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt að það var ekki óalgengt hér áður fyrr að húsnæðismálin væru hjá félagsmálaráðuneytinu, þannig var það mjög lengi. Og af því að hv. þingmaður minntist hér á fyrrum þingmann, Eygló Harðardóttur, þá var það einmitt í hennar tíð sem lögin í kringum þetta félagslega almenna íbúðakerfi voru byggð upp. Síðan tók Ásmundur Einar Daðason við á tímabilinu 2017–2021 og hann bætir sem sagt þessum hlutdeildarlánum við, sem er allt þessi félagslega nálgun. Á því kjörtímabili hafði verið mjög mikil áskorun — vel að merkja hefur aldrei hvarflað nokkurn tímann að nokkrum manni að skipulagsmálin væru hluti af félagsmálaráðuneytinu. (BHar: Nei.) Þegar Skipulagsstofnun verður til þá er hún auðvitað ekki þar undir. Hún var lengst af hjá umhverfisráðuneytinu. Það var einfaldlega á þessum tíma mikil áskorun að fara í hraðari uppbyggingu í húsnæðismálum og það voru mjög margir úti í samfélaginu, Samtök iðnaðarins, svo dæmi sé tekið og sveitarfélögin, sem töldu að það væri gallað að Skipulagsstofnun og sá hluti væri í umhverfisráðuneytinu og að húsnæðismálin, alla vega félagslegi vinkillinn og þar af leiðandi meiri félagslegur vinkill heldur en að horfa á húsnæðismál almennt, væru í félagsmálaráðuneytinu og síðan væri sveitarstjórnarstigið hjá samgönguráðuneytinu. Síðan liggja auðvitað allir þræðir inni í fjármálaráðuneyti þannig að þetta var kannski á fjórum stöðum. Það væri mikilvægt að ná hlutunum saman á einn stað til að ná samhæfingu og ná krafti í uppbygginguna, enda tókst það. Það er bæði verið að byggja þessar félagslegu íbúðir eins og ég fór hérna yfir áðan og síðan var verið að byggja 25.000 íbúðir á þessu tímabili.