stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni einmitt fyrir þetta því að ég þekki þessa umræðu mjög vel, komandi frá sveitarfélögunum, við vorum eiginlega algerlega brjáluð út í framkvæmdarvaldið og ríkisvaldið, það var svo erfitt að ná utan um þennan málaflokk því að hann var svo víða. Þess vegna verð ég að viðurkenna að mér finnst það mjög miður að hæstv. ríkisstjórn hafi ákveðið að fara þessa leið sem hér er farin því að ég held að það sé mikil afturför. Við vorum búin að læra einmitt af þessari sögu, þessu ferli sem hv. þingmaður var að fara yfir. Ég hef engar athugasemdir við það að félagsmálaráðherra sé líka með húsnæðismálin, þ.e. þann hluta er lýtur að félagslegu húsnæði. En þetta er bara svo miklu, miklu meira en það. Skipulagsmálin eru auðvitað risastór þáttur. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá voru þau lengst af undir umhverfisráðuneytinu. Þess vegna var svo skynsamlegt að vera einmitt með innviðaráðuneyti sem tæki þá yfir þann málaflokk. Ég ætla að leyfa mér að spá því að hæstv. innviðaráðherra muni þurfa að leggja töluverðan tíma í það að eiga samtöl við sveitarfélög einmitt um skipulagsmál og húsnæðisuppbyggingu í tengslum við aðra innviðauppbyggingu sem fellur undir hæstv. ráðherra. Þannig að ég held að hæstv. ríkisstjórn sé bara að flækja málin verulega fyrir sér og koma í veg fyrir það að hægt verði að ná raunverulegum árangri. Ég vona innilega að hæstv. ríkisstjórn með alla vega Viðreisn innan borðs sé ekki að hugsa sér og sjá það fyrir sér að húsnæðismál muni verða eingöngu félagsmálahluti. Ég bara vona að innan hæstv. ríkisstjórnar séu þau skynsemisrök að huga að því að skipulags- og byggingarmál, húsnæðismarkaðurinn og mannvirkjageirinn skiptir svo miklu máli fyrir þetta samfélag. (Forseti hringir.) Þú leysir ekki úr skorti á lóðum eða skorti á húsnæði í félagsmálahluta húsnæðiskerfisins.