stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég get í sjálfu sér tekið undir andsvar hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, tilgangur þess að ná hlutunum saman á sínum tíma var að búa til samhæfingu annars vegar, stærri kraft en líka vegna þess að það var búið að undirbúa þennan félagslega þátt. Það var búið að fara með löggjöfina hérna í gegn á árunum 2015, 2016, 2017, það var búið að bæta við hlutdeildarlánunum á árunum 2018, 2019. Það var búið að koma á Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sem grundvelli þessara breytinga. Þá þurfti að fara að horfa á mannvirkjageirann í stærri mæli. Það er einfaldlega þannig, eins og ég sagði í ræðu minni, að það eru komnar, held ég, milli 4.000 og 4.500 íbúðir inn í almenna íbúðakerfið þar sem fólk nýtur sannarlega lægri leigu. Það er ekki búið að flytja inn í þær allar en það er búið að veita heimildir. Það er komið yfir 1.100, 1.200 inn í hlutdeildarkerfið og á næstu árum á að bæta þarna við þannig að við verðum í þessum hluta komin með 10.000–11.000 heimili innan fimm ára sem verða komin í þetta skjól. Það er sá hluti sem er tekjulægstur, það er félagsmálahlutinn og það mun bara ganga eðlilega fyrir sig. En það sem er stærra mál er að horfa til þess að það sé nægilegt framboð af íbúðum og lóðum fyrir alla hina og það sé tengt saman við uppbyggingu í samgöngum. Það að skipulagsmálin séu inni í félagsmálaráðuneytinu hljómar í mínum eyrum svolítið eins og bastarður. Það er sérkennilegt. Látum vera ef menn hefðu sett aftur húsnæðismálin inn í félagsmálaráðuneytið eins og var í gamla daga. En af hverju menn tóku skipulagsmálin út úr innviðaráðuneytinu og færðu í félagsmálaráðuneytið er mér hulin ráðgáta.