156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.

271. mál
[12:02]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M):

Virðulegi forseti. Ég vil fagna því hér sé komið fram frumvarp til að skerpa á því prógrammi sem fram undan er í þessum mikilvæga málaflokki og mig langar til að biðja hæstv. innviðaráðherra að svara mér um nokkra hluti. Það eru allt mikilvæg verkefni sem hér eru listuð upp og eitt af þeim er sannarlega fjarskiptamálin því að þau eru hluti af því sem við köllum sjálfsögð lífsgæði á nútíma Íslandi. En þau eru líka öryggismál. Ég upplifði það mjög sterkt þegar ég hóf mína þingmennsku að á ferðum mínum um landið er kerfið svo götótt að þú getur í rauninni ekki unnið á ferð. Þú getur ekki sinnt störfum í kjördæminu vegna þess að þú dettur úr sambandi á nokkurra mínútna fresti, jafnvel nokkurra sekúndna fresti á verstu stöðum. Því vil ég spyrja hæstv. innviðaráðherra: Liggur fyrir áætlun um hvenær við getum treyst því að þessu verði kippt í liðinn?

Það má rekja þetta að einhverju leyti til þess umdeilanlega skrefs að einkavæða Póst og síma á sínum tíma. Við vitum hvernig fór fyrir póstinum, það er eiginlega í lamasessi allt sem heitir póstsamgöngur eða póstþjónusta á Íslandi. Símanetið, grunnkerfið — því miður er það þannig á þessum samkeppnismarkaði sem nú er að það eru svæði sem þykja ekki sérlega gróðavænleg og þá verður það bara út undan og sá sem verður fyrir því að lenda í slysi á slíkum slóðum getur verið dauður áður en hjálp berst, sé ekki símasamband fært til betri vegar en nú er. Þetta er fyrsta mál.

Í öðru lagi var ég á ráðstefnu ásamt hæstv. innviðaráðherra fyrir liðlega mánuði síðan þar sem var Teitur Samuelsen, umsjónarmaður hinna stórkostlegu jarðgangaframkvæmda Færeyinga, frænda okkar. Þeir eru sirka 50.000 á móti okkar 400.000 manna samfélagi. Samt eru þeir ljósárum á undan okkur í jarðgangagerð og framsækni í þeim efnum, samgöngumálum. Þeir eru búnir að gera tvö 11 km göng, Austureyjargöng og Sandeyjargöng, og þeir eru búnir að sammælast um 23 km göng, Suðureyjargöng, sem eru á 180 metra dýpi og vel breið og örugg til umferðar með fleiri en einni akrein. Þarna var líka fjárfestingarfulltrúinn sem hefur aðstoðað Færeyinga, heitir því kynduga nafni Kashif Khan, „he will provide cash if he can“. Þetta er nú eitthvert austurlenskt nafn, en hann er frá Metlife Investment Management. Mér leikur forvitni á að vita hvort hæstv. ráðherra hefur haft samband við þann ágæta fjárfesti og leitað leiða til þess að við getum hraðað okkar samgöngumálum og tryggt aukið öryggi fyrr en ella, mögulega með því að fara fram hjá kerfinu sem veldur þenslu og verðbólgu og hækkuðum vöxtum og vandræðum, með því hreinlega að fela erlendum verktökum og erlendu vinnuafli að gera þetta. Þeir tóku 350 milljón evra lán til að framkvæma þetta, lögðu sjálfir fram 53 milljarða evra. Þetta eru stórar upphæðir fyrir 50.000 manna þjóð en ef það vefst ekki fyrir þeim ætti það ekki að vefjast fyrir okkur.

Þetta eru líka öryggismál og við erum í afar óöruggu samgöngukerfi, til að mynda frá Vestfjörðum þaðan sem sprottið er stærsta nýsköpunarævintýri Íslandssögunnar hinnar síðari, sem heitir Kerecis, þorskroðið fræga sem selt var fyrir 180 milljarða, það fyrirtæki í fyrra, 130 milljarðar af því komu til Íslands, inn í íslenskt hagkerfi, 40 milljarðar að auki fyrir hugverkaréttinn á þessu ári. Erum við í einhverju samræmi við þessar staðreyndir að fá hröðun öruggra flutningsleiða frá Ísafirði að Reykjavík eða Þorlákshöfn eftir atvikum?

Þetta eru spurningar sem væri gott að ekki bara spyrja sig heldur leita svara eftir svo fljótt sem verða má því alveg eins og réttilega var bent á hér af fyrrum innviðaráðherra þá kostar það mikinn tíma og eflaust peninga að skipta um eina ríkisstjórn. Þannig var það líka fyrir átta árum síðar, þá var allt stokkað upp í tólf ráðuneyta kerfi og málaflokkar fluttir á milli víða á dreif. Svo er þetta aftur upp stokkað og ég ætla ekki að dvelja við það. Þetta er niðurstaðan. Við óskum mönnum bara velfarnaðar í störfum sínum og reynum að benda á hvað best mætti verða og hvernig megi hjálpa til við það að láta hlutina ganga eftir farsællega og án þeirra hliðarverkana sem ég nefndi hér áðan.

Þetta er bara spurning: Hefur hæstv. innviðaráðherra lagt drög að því að leita atfylgis bæði í ráðum og fjármögnun til þeirra sem hafa gert Færeyjagöngin stórkostlegu, þessi tvisvar sinnum 11 km göng og núna 23 km göng, Suðureyjargöng sem fram undan eru? Það er eiginlega svo ótrúlegt að það er með ólíkindum að smáþjóð eins og Færeyjar skuli treysta sér í slíkt en við erum að væflast áratug eftir áratug í einhverju sem búið er að tala um, Sundabraut, í hvað, 30 ár? Hvenær getum við komist á beinu brautina í samgöngumálunum? Það er spurningin og ég treysti hæstv. innviðaráðherra til góðra verka en leyfi mér að spyrja hvar málin eru stödd.

Ég ætla ekki að hafa orð mín mikið lengri eða fleiri í þessum efnum en ég vil óska hæstv. ráðherra velfarnaðar í störfum sínum og vonast til að hann komist yfir allt það sem hér er upp listað og fram sett og ljúka því farsællega sem allra fyrst því hér eru brýn mál á ferð.

(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmann á að þingmálið er íslenska. (JFM: Það veit hv. þingmaður mætavel en hér voru erlend nöfn nefnd, Kashif Khan.))