stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu- og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir framsöguna hérna. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi að það hefði verið mikið samráð haft við hana þegar Viðreisn var með þennan málaflokk og ég fagna því. Hún var þá formaður skipulagsnefndar í Mosfellsbæ. Ég gegni þeirri stöðu núna og hef gert á þessu kjörtímabili og get sagt það að það var ekki í tíð síðustu ríkisstjórnar mikið samráð við okkur í Mosfellsbæ varðandi skipulagsmál. Hér erum við að fjalla um það hvort húsnæðismálin eigi að eiga heima í félagsmálaráðuneytinu eða ekki. Ég held að það sé alveg klárt að húsnæðismál eru að hluta til félagsmál en þau eru náttúrlega fyrst og fremst skipulagsmál.
Mig langaði líka aðeins að nefna það að það er jú mikilvægt að ná jafnvægi á byggingamarkaði. Það er mikilvægt að lækka verð á íbúðum og ná jafnvægi þarna. En það má ekki gleyma því að þetta er á forræði sveitarfélaga og sveitarfélög eru ekki alltaf í stakk búin til að byggja þá innviði sem þarf þegar verið er að byggja húsnæði og það er eitthvað sem þarf að hafa í huga. Fram hafa komið hugmyndir um að stofna innviðasjóð og ég ætla að leyfa mér að taka undir það. Það þarf að vera samtal á milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og það þarf kannski meira samtal þarna milli. Ég ætla að hvetja hæstv. innviðaráðherra til að hafa það í huga. Sveitarfélög hafa vera að reyna að kroppa upp í innviðakostnaðinn með því að leggja á innviðagjöld og semja sérstaklega við byggingarverktaka um uppbyggingu. Það er eitthvað sem er gert af nauðsyn.