156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

sveitarstjórnarlög.

272. mál
[12:12]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 129. gr. sveitarstjórnarlaga sem fjallar um fjárhagslegt áhrifamat lagasetningar, stjórnvaldsfyrirmæla og stefnumótandi ákvarðana stjórnvalda á sveitarfélög. Grundvallarmarkmið frumvarpsins er að tryggja sátt um fjárhagslegt mat þeirrar lagasetningar sem hefur áhrif á sveitarfélög og fjármögnun þeirra verkefna sem falin eru sveitarfélögunum. Frumvarpið er mikilvægt skref að bættum samskiptum ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsleg málefni. Með sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, sem tóku gildi 1. janúar 2012, var að finna það nýmæli í 129. gr. laganna að gerð var krafa um að ef fyrirsjáanlegt væri að tillaga að lagafrumvarpi, tillaga að stjórnvaldsfyrirmælum eða aðrar stefnumarkandi afmarkandi ákvarðanir af hálfu stjórnvalda ríkisins hefðu fjárhagsleg áhrif á sveitarfélag þá skyldi fara fram sérstakt mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélaga.

Eins og rakið var í frumvarpinu, frumvarpi því sem varð að sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, var einn grundvallarþáttur laganna að setja skýrari reglur um fjármál sveitarfélaga og eftirlit með fjármálum þeirra. Til að markmið laganna um bætta fjárstjórn sveitarfélaga gæti náð fram að ganga var bent á að aðkallandi væri að bæta kostnaðarmat einstakra verkefna sem sveitarfélögunum væri falið að sinna. Á grundvelli framangreindra lagaákvæða hefur Stjórnarráðið unnið eftir samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna frá 24. febrúar 2023 þegar kemur að áhrifamati frumvarpa, stjórnvaldsfyrirmæla og stefnumótandi ákvarðana.

Undanfarin ár hafa sveitarfélög hins vegar bent á að ýmsir vankantar hafi verið á ferlinu. Það hafi t.d. borið á því að mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög hafi ekki verið unnið þrátt fyrir skýrt ákvæði sveitarstjórnarlaga um að það skuli ávallt fara fram. Þá séu dæmi um að mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög hafi ekki verið unnið með fullnægjandi hætti. Þessu tengt hefur verið bent á nauðsyn þess að mælt sé fyrir um formlegan vettvang í lögum til að leysa úr ágreiningi ríkis og sveitarfélaga um áhrif frumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla á fjárhag sveitarfélaganna. Af þessum sökum samþykkti Alþingi með þingsályktun, nr. 2/154 frá 5. desember 2023, um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 um að hefja skyldi endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga.

Í kjölfar samþykktar Alþingis var síðastliðinn vetur settur á laggirnar starfshópur sem í sátu fulltrúar innviðaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga til að annast umrædda endurskoðun. Starfshópurinn skilaði tillögum að umbótum á verklagi innan Stjórnarráðsins og bættum samskiptum við Samband íslenskra sveitarfélaga um gerð áhrifamata. Jafnframt lagði starfshópurinn til breytingar á 129. gr. sveitarstjórnarlaga til að styðja við hið nýja verklag og er frumvarpið að mestu leyti byggt á tillögum hópsins. Mikilvægt er því að frumvarp þetta fái brautargengi til að tillögur starfshópsins nái fram að ganga.

Helstu breytingar á 129. gr. sveitarstjórnarlaga sem lagðar eru til í frumvarpinu eru m.a.: Í fyrsta lagi að skýrar verði kveðið á um gerð fjárhagslegs mat á sveitarfélög. Í öðru lagi að skýrar verði kveðið á um möguleika Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaga við að yfirfara fjárhagslegt mat á sveitarfélög. Í þriðja lagi að ráðherrum og sveitarfélögum verði heimilt að vísa ágreiningi um fjárhagslegt mat til samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga sem starfrækt er á grundvelli 3. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga og gengur í daglegu tali undir nafninu Jónsmessunefnd. Í fjórða lagi að ráðherra beri að grípa til ráðstafana ef í ljós kemur að ekki hafi farið fram fjárhagslegt mat á lagafrumvarpi, stjórnvaldsfyrirmælum eða stefnumarkandi ákvörðunum. Slíkar ráðstafanir geta m.a. falið í sér breytingu á fjármögnun eða þjónustukröfum.

Þess ber að geta að umræddur starfshópur lagði jafnframt til að ríkisendurskoðanda verði falið það hlutverk að gera endurmat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög að liðnum fimm til tíu árum frá setningu laga að stjórnvaldsfyrirmælum ef í ljós kemur að fjárhagsleg áhrif þeirra á sveitarfélög eru veruleg. Það er hins vegar í höndum forsætisnefndar eða forseta Alþingis að leggja til breytingar á hlutverki ríkisendurskoðanda þar sem stofnunin heyrir Alþingi. Ég hef því óskað eftir því við forseta Alþingis og forsætisnefnd að við þinglega meðferð þessa frumvarps muni hún jafnframt taka mál til meðferðar og eftir atvikum leggja til breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda samhliða samþykkt þessa frumvarps, nái það fram að ganga.

Virðulegur forseti. Þetta litla frumvarp ber það kannski ekki með sér en ávinningur þess getur verið umtalsverður ef rétt er staðið að málum. Ef markmiðum frumvarpsins um bætt verklag við fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélög verður náð munu sveitarfélög fá skýrari mynd af því hvaða áhrif ný löggjöf og aðrar ákvarðanir stjórnvalda munu hafa á starfsemi þeirra og fjárhag sem gerir þau betur í stakk búin til að undirbúa sig fyrir breytingar. Ítarlegt áhrifamat getur jafnframt kallað á þéttara samráð ríkis og sveitarfélaga og leitt til þess að meiri líkur eru á árangursríka innleiðingu nýrra reglna og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitarfélög. Vonir standa fyrst og fremst til þess að frumvarpið dragi úr ágreiningi ríkis og sveitarfélaga um fjárhagsleg málefni og stuðla að skilvirkari fjárhagslegri sjálfsstjórn sveitarfélaga.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umræðu.