156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

sveitarstjórnarlög.

272. mál
[12:20]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu í þessu máli og lýsi ánægju minni með að þetta mál skuli vera fram komið. Við sem höfum starfað á sveitarstjórnarstigi þekkjum ágætlega þann ágreining sem hefur verið viðvarandi í gegnum tíðina milli ríkis og sveitarfélaga um kostnaðarmat á þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til af hálfu ríkisins. Það hefur kannski birst helst í þeim málaflokkum sem færðir hafa verið frá ríki til sveitarfélaga. Nægir þar að nefna málaflokk fatlaðs fólks þar sem stöðugur ágreiningur hefur verið til staðar um þann málaflokk. Ég velti fyrir mér, kannski vegna þess að við erum hér að tala um að lögfesta samninginn um réttindi fatlaðs fólks, hversu langt við erum komin í því að kostnaðarmeta t.d. þær breytingar sem munu eiga sér stað, þau réttindi sem verða aukin við að þessi samningur verði lögfestur, því að ég held og reikna með því að það muni hafa talsverð áhrif á sveitarfélög. En að því sögðu fagna ég því að það sé verið að taka það alvarlega (Forseti hringir.) að kostnaðarmeta það sem ríkisvaldið er að gera gagnvart sveitarfélögunum.