sveitarstjórnarlög.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir framsöguna og að koma fram með þetta frumvarp. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra í ljósi umræðna sem voru hér fyrr í morgun í óundirbúnum fyrirspurnum: Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þess undirbúnings sem unninn hefur verið varðandi álagningu veiðigjalda? Í því sambandi langar mig til að lesa hérna örlítið fyrir ráðherrann sem kemur fram í umsögn sjávarútvegssveitarfélaga um það frumvarp, með leyfi forseta:
„Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga mótmælir því harðlega að veittur sé einungis tíu daga umsagnarfrestur um svo umfangsmiklar og afdrifaríkar breytingar á veiðigjöldum. Svo skammur frestur gerir sveitarfélögum ókleift að meta af fullri alvöru þær víðtæku efnahagslegu og samfélagslegu afleiðingar sem fyrirhugaðar breytingar kunna að hafa á atvinnulíf og í framhaldinu á rekstur sveitarfélaga.“
Einnig vil ég nefna hér að í samræmi við 129. gr. sveitarstjórnarlaga ber ráðuneytinu að meta áhrif lagafrumvarpa á sveitarfélög og leita samráðs við þau ef ætla má að áhrif verði á fjárhag eða starfsemi þeirra.
Út frá þessu langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra: Er hann bara ekki að koma of seint fram með þetta frumvarp? Telur þá ráðherrann að mögulega sé fólgin einhver réttarbót fyrir sveitarfélögin í þessu sem hér er fært fram þegar við horfum upp á það hvernig farið er með sveitarfélögin í þessu svokallaða samráði sem átt hefur sér stað? Vill ráðherrann hafa skoðun á því máli?