sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Tel ég að vel hafi verið staðið að samráði við sveitarfélögin? Já, ég tel það að það hafi verið ágætlega staðið að þessu máli. Þetta fer í samráðsgátt. Sveitarfélögin geta komið með umsagnir sínar um frumvarpið, sagt sína skoðun á því í samráðsgátt eins og borgarar í þessu landi eða hagsmunasamtök. Það má alltaf gera betur, svo sannarlega, en málið er enn þá í ferli eins og ég rakti hér áðan þannig að ég get ekki séð að ekki sé tekið tillit til sjónarmiða sveitarfélaganna. Það er verið að hlusta á sveitarfélögin núna í samráðsgátt, þau leggja fram umsagnir sínar og ég efast ekki um að þau muni líka gera það í umsagnarferli hjá Alþingi. Þannig gengur þetta fyrir sig. En ríkisstjórnin þurfti ekki að spyrja sveitarfélögin hvort þau mættu leggja fram frumvarpið. Það er ekki þannig sem það gengur fyrir sig. Hin pólitíska stefnumótun á sér stað hjá ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum hvað þetta mál varðar og frumvarpið er unnið samkvæmt því og svo fer það í samráð þannig að við heyrum þá sjónarmið sveitarfélaganna og ég vænti þess líka að það fari í mat á fjárhagslegum áhrifum, þá skv. 129. gr. sveitarstjórnarlaga. Og ég bara treysti á það að þingmaðurinn sjái til þess að þetta frumvarp sem hér er til umræðu verði samþykkt með hraði, fari í gegnum umhverfis- og samgöngunefnd og verði samþykkt og að það verði orðið að lögum þegar kemur að því samráði. En ég held að það sé raunverulega ekki aðalatriði í þessu máli, ég held að aðalatriðið sé að það fari fram þetta fjárhagslega mat. Það er verið að skoða þetta í nefndunum og m.a. áhrifin á fyrirtækin, á ákveðna stærð fyrirtækja, millistóru og stóru sjávarútvegsfyrirtækin, og ég treysti að hin þinglega meðferð muni tryggja samráð líka. Við erum með samráðsvettvang í Stjórnarráðinu, sem er samráðsgáttin, og svo erum við aftur með samráð í þinginu. Önnur ríki hafa þetta ekki svona. Við erum með tvöfalt samræmt kerfi. Sjálfur tel ég þetta of mikið. Ég tel miklu einfaldara að hafa samræmið meira í byrjun (Forseti hringir.) og minna fyrir þingið, enda þingið … Og ég efast ekki um það að þetta verði kannað rækilega, (Forseti hringir.) bæði áhrifin á sveitarfélögin og fyrirtækin og að við getum afgreitt lög um veiðileyfagjald (Forseti hringir.) með sóma hérna í vor.