156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.

288. mál
[12:38]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðuleg forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um málefni aldraðra. Frumvarpið markar tímamót í þjónustu við aldraða á Íslandi. Eins og öllum er kunnugt fjölgar öldruðum hratt hér á landi og gera áætlanir ráð fyrir að hlutfall þeirra sem eru 67 ára og eldri muni fara úr 12,4% árið 2020 í allt að 20% árið 2040, eða 1/5. Þetta þýðir að við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum við að tryggja öldruðum nauðsynlega þjónustu, þar á meðal aðgengi að hjúkrunarheimilum.

Frumvarpið sem hér er lagt fram er afrakstur umfangsmikillar vinnu og samráðs milli ríkis og sveitarfélaga. Frumvarpinu er þannig ætlað að festa í lög breytta verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga hvað varðar ábyrgð og aðkomu sveitarfélaga að fjármögnun á uppbyggingu hjúkrunarheimila sem byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila sem undirritað var þann 19. mars síðastliðinn.

Markmið frumvarpsins er að leiða til lykta þá togstreitu sem ríkt hefur á milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgð á þessum mikilvæga málaflokki. Með því er hægt að rjúfa þá kyrrstöðu sem hefur verið í uppbyggingu hjúkrunarheimila og einfaldað samskipti ríkis og sveitarfélaga á því sviði.

Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að vikið verði frá núverandi fyrirkomulagi hvað varðar uppbyggingu á hjúkrunarheimilum sem byggist á sameiginlegu eignarhaldi ríkis og sveitarfélaga. Í stað færist fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir á ábyrgð ríkisins. Eftir breytingarnar munu sveitarfélög framvegis ekki bera ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar og leigu hjúkrunarheimila, auk þess sem sveitarfélögum verður ekki lengur skylt að úthluta lóðum án greiðslu gatnagerðargjalda. Þegar sveitarfélög úthluta lóðum undir hjúkrunarheimili verður það hins vegar áfram gert án lóðarleigu og án byggingaréttargjalda enda er um almannaþjónustu að ræða.

Frumvarpið hefur þó ekki áhrif á ábyrgðar- og kostnaðarskiptingu hjúkrunarheimila sem eru nú þegar í byggingu. Þá mun ríkið taka við eignarhlut sveitarfélaga í hjúkrunarheimilum sem hafa verið í sameiginlegri eigu og bera ábyrgð á rekstri og viðhaldi þeirra fasteigna. Frumvarpið felur í sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð en áætlað er að hlutdeild sveitarfélaga í uppbyggingu nýrra hjúkrunarheimila sem færist yfir til ríkissjóðs miðað við núverandi fjárfestingarþörf sé um 1.410 millj. kr. árlega, eða rúmir 1,4 milljarðar. Þá er jafnframt áætlað að gatnagerðargjöld vegna 100 rýma hjúkrunarheimilis, sem er um 6.500 m² að stærð, muni nema að jafnaði um 190 millj. kr.

Til viðbótar bætist jafnframt við meiri háttar viðhaldskostnaður í samræmi við eignarhlutfall í þegar byggðum hjúkrunarheimilum sem færist yfir til ríkisins frá sveitarfélögum. Breytt ábyrgðarskipting felur ekki í sér breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga heldur er hún liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga. Áætlað er að kostnaður við verkefnið geti orðið um 1.600 millj. kr. árlega miðað við áætlaða þörf 1.600 nýrra hjúkrunarrýma á næstu 15 árum. Er vert að geta þess að þetta er liður í því sem lýtur að bættum samskiptum ríkis og sveitarfélaga og hér erum við að taka stórt skref í því að létta fjárhagslegum byrðum af sveitarfélögum og er í samræmi við þá umfangsmiklu vinnu sem hefur átt sér stað og samráðs milli ríkis og sveitarfélaga

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og þeim áhrifum sem það er talið hafa á ríkissjóð. Eins og ég vék að í upphafi ræðu minnar þá er ríkið með frumvarpi þessu að uppfylla samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila en forsendur samkomulagsins voru þær breytingar á lögum sem lagðar eru til í frumvarpi því sem hér er lagt fram. Ég hef trú að því að þessar breytingar séu til þess fallnar að leiða til lykta fyrrgreinda togstreitu sem ríkt hefur á milli ríkis og sveitarfélaga á þessum málaflokki. Með því er hægt að rjúfa þá kyrrstöðu sem hefur verið í uppbyggingu hjúkrunarheimila og einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga á því sviði og bæta þannig samskipti ríkis og sveitarfélaga á þessu sviði sem öðrum.

Það er mat mitt að þessi breyting muni leiða til betri þjónustu við aldraða, skapa meiri stöðugleika í rekstri hjúkrunarheimila og stuðla að rétti réttlátara samfélagi fyrir okkur öll.

Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.