heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég er með spurningar varðandi 2. gr. frumvarpsins. Í 2. gr. stendur, með leyfi forseta:
„Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Samhliða breytingum á ábyrgðarskiptingu vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila skal afskrifa og yfirfæra eignarhlut sveitarfélaga í fasteignum hjúkrunarheimila til ríkisins sem mun alfarið annast og kosta viðhald og endurbætur á viðkomandi fasteign. Yfirfærsla á eignarhlut sveitarfélaga skv. 1 mgr. nær aðeins til hjúkrunarheimila sem eru í rekstri og sameiginlegri eigu ríkis og sveitarfélaga og skal lokið eigi síðar en 1. janúar 2026.“
Í Norðvesturkjördæmi höfum við dæmi um hjúkrunarheimili sem hefur verið rekið í byggðasamlagi og því verður slitið núna á næstu mánuðum. Rekstur hjúkrunarheimilisins hefur verð í halla síðustu ár, 30–100 millj. kr. halla á hverju ári, og því var tekin ákvörðun að skila rekstrinum. Eftir stendur hins vegar fasteign og fasteignin er skuldsett. Hvernig verður farið með skuldir sveitarfélagsins í þessu tilfelli? Mun ríkið taka húsið til sín og skilja eftir skuldirnar á sveitarfélaginu eða verður þetta gert upp?
Einnig vil ég nefna að væntanlega standa upp á sveitarfélagið lífeyrisskuldbindingar sem geta numið umtalsverðum fjárhæðum. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að farið verði með lífeyrisskuldbindingar þegar augljóst er að það er ekki gert ráð fyrir því í daggjöldum að það sé breytileiki á milli hjúkrunarheimila, hvernig sem þau eru stödd, vegna lífeyrisskuldbindinga? Það er sama daggjaldið á öllum stöðum. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að leyst verði úr þessu máli fyrir þetta litla en duglega sveitarfélag?