156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.

288. mál
[12:46]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Það ákvæði sem hv. þingmaður fór hér yfir og er til bráðabirgða lýtur að þegar byggðum hjúkrunarheimilum varðandi yfirfærsluna á eignarhaldinu til ríkisins. Varðandi þau atriði sem hann spurði um, þ.e. skuldir sveitarfélaga og lífeyrisskuldbindingar og annað slíkt, þá er gert ráð fyrir því að stýrihópur sem er skipaður fulltrúum sveitarfélaga og ríkisins muni fara yfir þessi atriði svo yfirfærslan gæti átt sér stað. Í þeim stýrihópi verður tekið á þessu máli varðandi skuldirnar og lífeyrisskuldbindingarnar líka þannig að þegar byggð hjúkrunarheimili geti farið yfir til ríkisins. Þá þarf þessi pakki að fara með sem hann nefndi, þ.e. skuldir og lífeyrisskuldbindingar. Það verður tekið á því þar.