156. löggjafarþing — 30. fundur, 10. apr. 2025.
heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.
288. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svörin. Má ég þá skilja orð ráðherrans sem svo að um þetta mál sé óvissa þannig að sveitarfélag geti ekki gengið að því vísu að skuldastaðan verði leiðrétt og heldur ekki að gengið verði frá lífeyrisskuldbindingum þannig að með því væri sveitarfélagið í raun verr sett eftir að hafa skilað af sér þessu hjúkrunarheimili og látið ríkið yfirtaka það heldur en það var í áður? Það væri skrýtin staða.