156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

heilbrigðisþjónusta og málefni aldraðra.

288. mál
[12:48]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég myndi ekki tala um óvissu hér á nokkurn hátt heldur ákveðið verkefni sem lýtur að þessari yfirfærslu á eignarhaldi á hjúkrunarheimilunum. Þetta er ákveðið uppgjör sem þarf að eiga sér stað sem lýtur að þeim atriðum sem hv. þingmaður nefndi sem lúta að skuldum og lífeyrisskuldbindingum. Ég treysti því og trúi að fulltrúar sveitarfélaga muni gæta hagsmuna sinna í þeim stýrihópi. Þetta er raunverulega bara verkefni sem þarf að fara í, fara yfir hverjar skuldir eru á sveitarfélögum vegna þessa og lífeyrisskuldbindingar líka. Þannig að ég get ekki séð annað en að þetta sé bara hluti af þessari yfirfærslu sem á sér stað sem þarf að leysa í stýrihópnum. Ég get ekki séð að það sé óvissa hvað það varðar. Við erum að létta hér byrðarnar á sveitarfélögunum svo um munar, eins og kom fram í ræðu minni hér áðan. Þetta eru verulegar fjárskuldbindingar sem ríkið er að taka á sig samkvæmt þessu frumvarpi og það er gert í góðri samvinnu og á grundvelli umfangsmikillar vinnu og samráðs milli ríkis og sveitarfélaga. Þannig að ég get ekki séð að sveitarfélögin séu að horfa á óvissu. Samráðið mun halda áfram í stýrihópnum og við munum klára þetta mál eins og best verður gert.