156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[12:59]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég mæli nú fyrir öðru frumvarpi mínu hér í dag. Þetta frumvarp er ekki síður mikilvægt. Nú mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga. Grunnstefið í þessu frumvarpi er annars vegar lögfesting reglna um afturköllun alþjóðlegrar verndar þegar einstaklingur hefur framið sérstaklega alvarlegt afbrot eða ógnar öryggi ríkisins og hins vegar, sem er ekki síður þýðingarmikil breyting, afnám svokallaðrar 18 mánaða reglu, nánar tiltekið afnám séríslenskra reglu sem leiðir til þess að einstaklingar fái sjálfkrafa dvalarleyfi vegna tafa á málsmeðferð.

Frú forseti. Í stefnuyfirlýsingu þessarar ríkisstjórnar kemur m.a. fram að ríkisstjórnin vilji gæta samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála. Ég fæ stundum þá spurningu: Hvað felst í þessu, til hvaða ríkja eruð þið að vísa? Stærsta svarið í því samhengi er að ríkisstjórnin ætlar sér að afnema séríslenskar reglur, reglur sem Ísland er eitt um og það er ágætlega skýrt hverjar þær eru. Hér erum við að leggja til tvær breytingar í þá veru að taka úr sambandi tvær afdrifaríkar séríslenskar reglur. Eins og ég nefndi er með frumvarpinu lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd útlendings þegar viðkomandi hefur framið sérstaklega alvarlegt afbrot eða ógnar öryggi ríkisins. Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem ekki býr yfir slíkri heimild í sinni löggjöf, eina Norðurlandaþjóðin. Það þykir sjálfsagt og það þykir eðlilegt að einstaklingar sem fá alþjóðlega vernd í hverju landi virði grundvallarreglur þeirra samfélaga. Í dag er heimild til staðar til að afturkalla alþjóðlega vernd eingöngu við þær aðstæður ef útlendingur hefur í umsókn, gegn betri vitund, veitt rangar upplýsingar, leynt atvikum eða þegar aðstæður í heimaríki hafa batnað til hins betra. Í núgildandi lögum er ekki til staðar heimild ef flóttamaður hefur framið sérstaklega alvarlegt afbrot eða ógnað öryggi ríkisins. Það er í mínum huga öryggismál gagnvart almenningi að þetta úrræði verði til staðar í íslenskri löggjöf. En þetta er að mínu viti líka réttlætismál. Það er þannig með réttindi að þeim fylgja líka skyldur. Þeim fylgir líka ábyrgð. Það eru takmörk á réttindum. Það er í mínum huga forsenda þess að almenningur styðji áfram stjórnvöld í því að taka á móti fólki á flótta. Það vill þessi ríkisstjórn gera, taka vel á móti fólki sem er á flótta og við erum markviss í aðgerðum þar. Til þess að almenningur styðji okkur áfram í þeirri vegferð þá þarf það líka að vera skýrt að það geti haft afleiðingar í för með sér ef menn brjóta alvarlega gegn lögum og reglum okkar samfélags.

Frú forseti. Árin 2022–2024 hafa verið alger metár hvað varðar fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þetta hefur valdið miklu álagi á innviði. Það hefur falið í sér mikinn kostnað, gríðarlegan kostnað fyrir íslenska ríkið vegna þjónustu og þetta hefur haft áhrif á málsmeðferðartíma hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála. Ég leyfi mér að nefna hér að ég heimsótti Útlendingastofnun í morgun og fékk þar enn betri innsýn í það starf sem þar er unnið og umfjöllun um það hvernig málin standa þar. Kostnaður við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á þessum tveimur árum, 2022–2024, var rúmlega 38 milljarðar kr. Ljóst er að Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála réðu ekki við þennan gríðarlega fjölda umsókna á þessu tímabili og þótt dómsmálaráðuneytið hafi brugðist við — ég sé að forveri minn í embætti situr hér í salnum og hún á þakkir skilið fyrir að hafa brugðist við með fjölgun starfsmanna, bæði hjá Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála — var málahallinn orðinn slíkur að verulega erfitt var að vinna hann niður, verulega erfitt. Þetta hefur valdið því að mikill fjöldi mála hefur fallið á tíma samkvæmt þessari reglu, 18 mánaða reglunni, og töluvert margir hafa því sjálfkrafa fengið dvalarleyfi af þeirri ástæðu eingöngu að tafir hafa verið á málsmeðferð. Hér er ekki um flóttamenn að ræða. Hér á landi dvelur því talsverður fjöldi útlendinga sem ekki eru flóttamenn en hafa fengið dvalarleyfi á þeim eina grundvelli að málsmeðferð þeirra um alþjóðlega vernd fór fram yfir lögbundin tímamörk. Aftur vek ég athygli á því að ekkert annað Norðurlandaríki býr við þessa reglu.

Frú forseti. Einstaklingar sem eru flóttamenn eiga rétt á alþjóðlegri vernd á Íslandi. Flóttamenn eru þau sem sæta ofsóknum í heimalandi sínu eða eiga þar á hættu dauðarefsingu, pyndingar, ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þetta er stór hópur fólks í heiminum öllum og hér er um alþjóðlegt vandamál að ræða. Ísland ber skyldur í þessu samhengi eins og önnur ríki. Á því leikur ekki nokkur vafi af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Sá sem fær alþjóðlega vernd fær dvalarleyfi hér á landi í þrjú ár til að byrja með og félagslega aðstoð. Um þetta mannúðarkerfi verðum við að standa vörð, kerfi sem veitir flóttamönnum vernd, kerfi sem veitir flóttamönnum raunveruleg tækifæri til góðs lífs. Hérna verðum við að geta horft raunsætt á málin. Til þess að við getum staðið í lappirnar varðandi þetta, að geta t.d. veitt börnum raunveruleg tækifæri til góðs lífs á Íslandi og jafnrétti á við önnur börn, þá verðum við að hafa einhverja stjórn á þeim fjölda sem hingað kemur til lands og það mun ég sem dómsmálaráðherra gera. Hvers kyns séríslensk frávik eru erfið, þau verða auðveldlega kostnaðarsöm og þau eru einfaldlega ekki af hinu góða. Þau eru ekki til þess fallin að standa vörð um mannúðarkerfið. Þau eru ekki til þess fallin að standa vörð um þetta kerfi sem veitir flóttafólki vernd. Séríslensk regla býður upp á óhóflegan kostnað, dregur úr skilvirkni, sendir frá sér ranga hvata og það hefur verið reyndin hér á Íslandi hvað þessa reglu varðar.

Herra forseti. Ég mun nú gera nánari grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Í 3. gr. er lagt til að heimilt verði að afturkalla alþjóðlega vernd eins og ég hef áður greint frá. Þar er fjallað um það í hvaða tilvikum svo megi verða. Ákvæðið tekur mið af löggjöf annarra Norðurlanda og það tekur mið af nýsamþykktri löggjöf Evrópusambandsins um verndarmál sem mun taka gildi í júní 2026. Þaðan eru fordæmin sótt.

Virðulegi forseti. Í 4. gr. er lagt til að felld verði brott regla 2. mgr. 74. gr. laganna sem ég hef nú hér fjallað um, þessi 18 mánaða regla. Eins og ég hef ítrekað er ekkert hinna norrænu ríkjanna með sambærilegt ákvæði og því er um séríslenska málsmeðferðarreglu að ræða. Og svo ég segi hið augljósa þá mun afnám þessarar reglu vitaskuld í engu breyta vinnulagi og verklagi íslenskra stjórnvalda sem er að vinna mál annars vegar hratt og hins vegar vel. Þetta mun engu breyta þar um, samanber bara hina almennu málshraðareglu stjórnsýslulaga. Að teknu tilliti til þeirra hagsmuna sem eru í hverju máli fyrir sig þá ver málshraðaregla stjórnsýslulaga þá hagsmuni. Við brottfall ákvæðisins má hins vegar gera ráð fyrir verulega lægri útgjöldum í þjónustu við umsækjendur um vernd. Breytingin mun hafa fjárhagsleg áhrif fyrir sveitarfélög þar sem færri einstaklingar geta óskað eftir fjárhagsaðstoð félagsþjónustu sveitarfélaga. Það hefur svo aftur jákvæð fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð því að ríkissjóður endurgreiðir fjárhagsaðstoð til sveitarfélaganna fyrstu tvö árin eftir að umsókn fæst samþykkt.

Forseti. Í 6. gr. er kveðið á um nýjan dvalarleyfisflokk sem nefnist því sérstaka nafni, ætla ég að leyfa mér að segja, dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar. Hið nýja dvalarleyfi mun ná til þeirra sem ekki njóta alþjóðlegrar verndar en ekki er unnt að brottvísa vegna aðstæðna í heimaríki þar sem lífi eða frelsi gæti verið ógnað. Þetta er auðvitað mikilvægur punktur sömuleiðis. Ísland mun ekki taka þátt í því að brottvísa fólki til landa þar sem lífi þeirra kann að vera ógnað eða verður ógnað. Dvalarleyfið yrði hins vegar aðeins útgefið á meðan aðstæður í heimaríki eru með þessum hætti og verði breytingar á aðstæðum þá yrði viðkomandi brottvísað frá Íslandi. Ekki er fyrirséð að þetta verði í reynd stór hópur sem fær dvalarleyfi og réttindi samkvæmt því eru mun takmarkaðri en annarra.

Forseti. Í 10. gr. frumvarpsins er kveðið á um útgáfu dvalarleyfis til þess hóps sem áður dvaldi hér á landi á grundvelli dvalarleyfis sem hafði fengist vegna þessara tafa á málsmeðferð. Við brottfall 18 mánaða reglunnar verður ekki heimilt að endurnýja dvalarleyfi á þeim grundvelli áfram en skilyrði endurnýjunar er að forsendur fyrir veitingu leyfisins í upphafi hafi ekki breyst. Það er ljóst að þetta er að breytast með brottfalli reglunnar. En í ljósi þess að talin er þörf á því til skýrleika að handhafa slíks leyfis verði gert kleift að fá dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið þá er það gert að uppfylltum skilyrðum um trygga framfærslu og að viðkomandi eigi engin ólokin mál í refsikerfinu eða sé ekki í fangelsi eða bíði afplánunar. Þetta er bráðabirgðaákvæði sem nær einungis til framangreinds hóps.

Lagt er til að lög þessi öðlist þegar gildi, verði frumvarpið óbreytt að lögum, taki gildi strax. Ein undantekning er á því en gert er ráð fyrir að umsóknir sem þegar hafa náð tímamörkum við gildistöku fái skoðun hjá stjórnvöldum með tilliti til 18 mánaða reglunnar. Aðrir sem hafa sótt um og umsókn þeirra er innan tímafresta við gildistöku munu áfram fá efnislega niðurstöðu, mál þeirra fá áfram meðferð, fá áfram skoðun og fá áfram rýni en þau fá bara ekki sjálfkrafa dvalarleyfi vegna tafa. Það er nefnilega skýr meginregla að íslenskum rétti að umsækjandi um tiltekin réttindi hér á landi getur ekki byggt á því að hann hafi öðlast réttmætar væntingar eða lögmæta hagsmuni eingöngu vegna þess að mál dragist úr hömlu. Þvert á móti getur umsækjandi vitaskuld aðeins átt rétt til að stjórnvöld ljúki málum efnislega í samræmi við eðlilegar málshraðareglur enda hljóti aðilar máls hafa fyrst og fremst hag af því að fá efnislega lyktir sinna mála gagnvart stjórnvöldum.

Herra forseti. Ég hef farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins. Að öðru leyti vísa ég til greinargerðar þess og athugasemda við einstök ákvæði. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og hlakka til að fylgjast með framvindu þessa máls.