útlendingar.
Frú forseti. Ég er alltaf dálítið hrifin af því hvað Sjálfstæðisflokkurinn er beittur í útlendingamálum eftir að hann yfirgaf dómsmálaráðuneytið. Þau slitu ríkisstjórn vegna þess að þau höfðu ekki náð neinum árangri í útlendingamálum, töluðu um það í kosningabaráttunni að þau hefðu náð glimrandi góðum tökum á útlendingamálum og eru þeirrar skoðanir eftir að þau yfirgáfu dómsmálaráðuneytið að margt þurfi að gera í þessum málaflokki. En látum það liggja á milli hluta. Útlendingateymi dómsmálaráðuneytisins, fínustu færustu sérfræðingar í þessum málaflokki höfðu skoðað þetta. Það eru ekkert allir þeirrar skoðunar að það eigi yfirleitt að vera hægt að svipta fólk ríkisborgararétti, það máfæra rök með og á móti því. En þar vil ég minna hv. þingmann Sjálfstæðisflokksins ekki bara á fyrirheitna landið heldur líka á stjórnarskrá Íslands og skilyrði hennar um ríkisborgararétt. Mig minnir að það hafi verið þannig í Svíþjóð, það var eitthvert Norðurlandaríkjanna sem fór í þessa breytingu og þau breyttu hjá sér stjórnarskránni til þess. Þetta er sannarlega ekki einföld lagabreyting og ég vona að virðingin fyrir stjórnarskránni sé okkur öllum mikilvæg.