156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[13:19]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á því að koma hér upp og þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þessi tvö mál sem ráðherra hefur mælt fyrir hér í dag. Annað varðar breytingu á lögum um meðferð sakamála og svo er það frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga. Ég vil einnig fá að árétta það að þetta eru mál sem voru á þingmálaskrá á síðasta þingi, 155. þingi í haust, og mér finnst gott að ráðherra hafi tekið þessi mál upp og sé að mæla fyrir þeim hér því að ég tel að það þurfi að gera margt í málefnum útlendinga. Ég er þeirrar skoðunar og var það þegar ég var starfandi dómsmálaráðherra að þetta sé síkvikur málaflokkur sem þurfi endalaust að vera að horfa til.

Mig langar að spyrja hér hæstv. ráðherra, því að á meðan að sú sem hér stendur var í embætti þá lagði ég alla áherslu á það að samræma löggjöf okkar við löggjöf Norðurlandanna, hvort ráðherra hefði ekki talið rétt að ganga lengra en hér er gert.

Í febrúar á síðasta ári samþykkti þáverandi ríkisstjórn heildarsýn í málefnum útlendinga. Ég vil einnig fá að spyrja hvort ráðherra sé að vinna eftir þeirri heildarsýn og þá í samráði og samvinnu annarra ráðuneyta.