útlendingar.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður spyr um heildarsýn. Ég sem dómsmálaráðherra bý við þann munað í mínu embætti að ég nýt stuðnings þeirrar ríkisstjórnar sem situr. Þau frumvörp sem verða lögð fram í útlendingamálum munu ná fram að ganga. Það er ákveðið nýmæli því að ég er ekki í þannig sambúð að frumvörp muni sofna svefninum langa með sambúðaraðilum svokölluðum eins og reyndin var hér um árabil. Þetta þekkir hv. þingmaður. 18 mánaða reglan, sem ég veit að hún var áhugakona um, afturköllun var talað mikið um í fjölmiðlum. Við vitum öll í þessum sal hvers vegna þessi mál náðu ekki fram að ganga. Það var sú sambúð sem hv. þingmaður var þá í.
Heildarsýnina spyr hún um. Ríkisstjórnin er sammála í þessu máli. Það er mikilvægt í jafn stórpólitísku máli og hér um ræðir. Það mun leiða til þess að við munum ná betri árangri, skýrari sýn, skýrari fókus, draga úr kostnaði og geta veitt betri þjónustu fyrir það fólk sem hér fær alþjóðlega vernd. Það hefur verið fullkomið kaos í þessum málaflokki og við vitum öll hverjar ástæður þess eru. Heildarsýnin liggur fyrir. Fyrstu tvö málin eru fram komin eftir minna en 100 daga í ríkisstjórn. Önnur mál bíða haustsins og ég hlakka til framhaldsins.