útlendingar.
Frú forseti. Þetta er áhugavert. Í aðra röndina kvartar þingmaðurinn yfir í því að hér sé lítið að gerast en í hina röndina talar hún um að betra hefði verið að tefja þetta mál með því að setja það inn í samráðsgátt. Um þetta mál var samið við stjórnarmyndun, það lá algerlega fyrir hvað stjórnvöld ætluðu sér að gera í þessum efnum. Verkefnið er stórt, það blasir við, fjöldinn mikill. Ég er ekki þeirrar skoðunar að allt það fólk sem hingað sækir til lands séu einhverjir óvinir okkar nema síður sé. En við verðum að hafa stjórn á verkefninu. Þannig var það ekki í tíð síðustu ríkisstjórnar og þetta vitum við öll.
Hv. þingmaður spyr: Hvers vegna er brottfararúrræði ekki á dagskrá, sem ég hafði boðað í nóvember þegar minn flokkur sprengdi ríkisstjórn? Það er ekki á dagskrá m.a. vegna þess að ekkert slíkt frumvarp var til í ráðuneytinu og það veit hv. þingmaður mætavel. Ekkert slíkt frumvarp var til í ráðuneytinu en það er í vinnslu. Þarna vil ég líka segja við þau sem hafa áhyggjur af brottfararúrræði, af því að þetta er kaldranaleg aðgerð og hún er harkaleg, að hún er hins vegar nauðsynleg. Ég er á því að það sé miklu vænlegri leið að eiga svona úrræði heldur en að fara leið síðustu ríkisstjórnar sem hefur verið sú að fólk sem hingað hefur sótt alþjóðlega vernd og er verið að vísa í burtu er geymt í fangelsum landsins.