útlendingar.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta ræðu þar sem hún er að kvarta og kveina undan því að það sé verið að koma einhverju í verk sem Sjálfstæðisflokknum tókst ekki. Það er svolítið undarleg nálgun. Satt best að segja bjóst ég við að sjá annan hv. þingmann taka þessi mál til umfjöllunar, þ.e. hv. þm. Jón Gunnarsson, sem kenndi núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins um hvernig fór í útlendingamálum. Og loksins þegar við erum að sjá fram á árangur, það koma hér fram frumvörp sem Sjálfstæðisflokkurinn kom ekki í verk, þá er kvartað. Væri ekki betra að nota þennan tíma og það sem eftir lifir hér af störfum þingsins fram að páskum í að fagna þessu, fagna því að hér er komið verkfæri sem sárlega vantaði? Við erum einfaldlega að fjalla hérna um að það sé hægt að vísa stórhættulegum afbrotamönnum, sem hafa hlotið vernd, umsvifalaust úr landi.