156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[13:52]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég get ekki hjá setið og kem hér upp aftur til ávarpa aðeins hv. þm. Sigurjón Þórðarson sem kvartar yfir að við þingmenn Sjálfstæðisflokksins fögnum ekki þessu frumvarpi þegar við höfum komið hér þrír þingmenn upp einmitt til þess að fagna þessu frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra og hvetja hana til dáða í þessum málaflokki. Mér þykir líka afskaplega dapurt að heyra hv. þm. Sigurjón Þórðarson tala hér um að þetta sé ekki erfiður málaflokkur og þetta sé ekki viðkvæmur málaflokkur því þetta er einmitt, hv. þingmaður, erfiður málaflokkur og hann er viðkvæmur. Við erum hér að ræða um fólk í gríðarlega viðkvæmri stöðu, fólk sem kemur hingað í leit að betra lífi. Það er rétt sem hæstv. dómsmálaráðherra sagði hér að það hefur verið álag á kerfin okkar þar sem margir hafa komið hingað í leit að vernd sem uppfylla ekki þau skilyrði sem sett eru um vernd heldur koma hingað einstaklingar sem eru að leita sér að betri lífsgæðum og guð minn góður hvað ég ber mikla virðingu fyrir því fólki. Ég ber mikla virðingu fyrir fólki sem hefur dug og áræðni, kjark og þor til að fara um langan veg til að leita sér að betri lífskjörum. Vandinn hefur aftur á móti verið hér á síðustu árum að við höfum fengið svo marga einmitt í þeim sporum sem hafa ætlað að leita að þessum betri lífskjörum í gegnum verndarkerfið. Það gengur ekki upp. Það fólk verður að koma í gegnum dvalarleyfiskerfið. Þetta hefur valdið álagi á öll kerfin okkar. Það hefur verið áhyggjuefni okkar sem höfum starfað í málaflokknum og var áhyggjuefni mitt þegar ég starfaði sem ráðherra að ef fram heldur sem horfir þá munum við brjóta niður verndarkerfið. Við munum ekki geta gripið þá einstaklinga sem eru í raunverulegri þörf fyrir vernd og eru í raunverulegri lífshættu. Þannig að ég ætla að biðja hv. þingmann um að tala ekki með þeim hætti að þetta sé ekki viðkvæmur málaflokkur því að hann er það svo sannarlega þegar við erum hér með einstaklinga í jafn viðkvæmri stöðu og raun ber vitni.

Mig langar líka að fá að taka undir orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur. Hér vita það allir sem sitja hér í salnum að umræða um þessi mál hefur verið mjög hörð. Hún var óvægin og hún var hörð af hendi Viðreisnar og af hendi Samfylkingarinnar og einnig af hendi Flokks fólksins. Það væri ekki gert nóg, sagði Flokkur fólksins ítrekað. Flokkur fólksins sagði og formaður flokksins sagði ítrekað: Við munum styðja öll mál ríkisstjórnarinnar, sem þá var, í átt að því að ná betri tökum á málaflokknum. Það var líka erfitt að verða vitni að því, eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom svo vel inn á, að þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar töluðu gegn þeim breytingum sem hér voru lagðar fram á síðasta kjörtímabili af þeirri sem hér stendur, en einnig af flokksfélaga mínum, hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Það að þingmaður Flokks fólksins ætli að fara hér í einhverja leiki um það hvernig samkomulag og líðan er innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins — ég held að hann ætti að snúa sér að sínum eigin þingflokki, ég segi nú ekki annað en það. Þar virðist alla vega vera af nógu að taka.

Ég ætla að fá að leggja áherslu á það að á síðasta kjörtímabili þá lagði flokksfélagi minn, hv. þm. Jón Gunnarsson, fram frumvarp um breytingar á lögum um útlendinga sem var samþykkt hér á þingi. Það var samþykkt, jú, í erfiðu og flóknu ríkisstjórnarsamstarfi okkar með Framsókn og Vinstri grænum. Það hefur verið alger samfella og samhljómur í vinnu ráðherra Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjörtímabili í dómsmálaráðuneytinu. Ég tók við ráðuneytinu af hv. þm. Jóni Gunnarssyni og hélt áfram vinnu sem hann hafði hafið þannig að ef hv. þm. Sigurjón Þórðarson langar að fara að velta fyrir sér einhverri baráttu í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins þá verður hann að gera það á öðrum stað en akkúrat hér vegna þess að okkur er bara vel til vina í þingflokki Sjálfstæðisflokksins og þar er enginn kali á milli neinna eftir landsfundinn enda gerum við þetta vel, við Sjálfstæðismenn kunnum það vel að etja kappi í prófkjörum eða etja kappi um embætti eins og þar var. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson þarf bara ekki hafa neinar áhyggjur af því, engar.

Mig langar að koma aftur inn á það að á síðasta kjörtímabili fór málaflokkur hælisleitenda og útlendinga í óefni, það er alveg rétt. Við í Sjálfstæðisflokknum töluðum stöðugt um að við yrðum að gera breytingar á því sem ég nefndi áðan, við yrðum að komi í veg fyrir að svona mikill fjöldi umsækjenda sem uppfyllti ekki skilyrði verndar væri að koma í gegnum verndarkerfið. Það var algjör samhljómur um það í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að samþykkja þær breytingar og við náðum þeim breytingum í gegn í ríkisstjórn með Vinstri grænum og Framsókn í júní á síðasta ári. Það var vel. Það var vegna þess að allir í þeirri ríkisstjórn gerðu sér grein fyrir því að það yrði að standa vörð um verndarkerfið. Það var það sem við lögðum mikla áherslu á.

Ég vil sömuleiðis fá að endurtaka það sem ég sagði í andsvari mínu við hæstv. ráðherra áðan. Það var líka gríðarleg vinna lögð í það á síðasta kjörtímabili af hendi þáverandi ríkisstjórnarflokka að sammælast um heildarsýn í málefnum útlendinga. Þar voru 20 aðgerðir settar niður. Aðgerð nr. 1 var að ná í gegn breytingum á útlendingalögum sem náðust í gegn á síðasta ári. En við vorum líka að horfa á málaflokkinn í heild sinni þannig að þeir einstaklingar sem síðan fá vernd hér á Íslandi eða setjast hér að aðlagist íslensku samfélagi, að þeir læri íslensku, að þeir taki þátt í því að móta það velferðarsamfélag sem Ísland sannarlega er, að fólk sem hingað kemur taki þátt í samfélaginu með fullri atvinnuþátttöku, það greiði hér skatta og taki þátt í því að reka velferðarsamfélagið Ísland með okkur hinum. Einn lykillinn að því er einmitt að fólk læri íslensku. Við höfum haft áhyggjur af því, sérstaklega höfum við séð það núna á allra síðustu misserum að börn sem eru af erlendu bergi brotin eru í meiri hættu á því að falla út úr skólakerfinu okkar. Það er áhyggjuefni og það var einmitt ávarpað í þessari heildarsýn og sett meira fé í tungumálakennslu í grunnskólum landsins til að tryggja það að börn af erlendu bergi brotin myndu standa íslenskum börnum jafnfætis. Það var markmiðið með heildarsýninni, að þeir einstaklingar sem hingað koma og ætla að setjast hér verði fullgildir íbúar í íslensku samfélagi. Það lagði ég alla áherslu á í mínum störfum sem ráðherra og því hefur Sjálfstæðisflokkurinn talað fyrir.

Ég vil árétta það sem hæstv. dómsmálaráðherra nefndi hér áðan, að vinna við þessi frumvörp var hafin í ráðuneytinu áður en núverandi hæstv. dómsmálaráðherra kom þangað. Annars hefðu nú líklega þessi mál ekki farið á þingmálaskrá í september og átt að mæla fyrir þeim í nóvember. Vinna við þessi mál var hafin. Ég er ánægð og glöð að sjá að hæstv. dómsmálaráðherra skuli hafa tekið þessi mál áfram og hafi mælt fyrir þeim hér í dag. Og það höfum við Sjálfstæðismenn sagt sem hér höfum komið í pontu í dag. Ég get sagt það hér að ég mun styðja þetta mál að öllu óbreyttu. Ég tel að það sé jákvætt og það sé gott. En ég ætla líka að leyfa mér að segja, eins og ég sagði áðan í andsvari mínu, að þetta er síkvikur málaflokkur sem getur tekið breytingum frá degi til dags, viku til viku og við þurfum að halda vöku okkar. Og hvað eru nágrannaríki okkar að gera í þessum töluðu orðum? Ég get nefnt Þýskaland þar sem ný ríkisstjórn var mynduð í gær. Hvað ætlar ný ríkisstjórn Þýskalands að gera? Jú, þau ætla að herða sína útlendingalöggjöf. Á meðan önnur ríki í kringum okkur eru að því og við gerum ekki nóg þá erum við alltaf veikari hlekkur og þess vegna verður meiri ásókn hingað heldur en til annarra landa. Þess vegna getum við ekki látið hjá líða að halda áfram þannig að útlendingalöggjöf okkar sé með sambærilegum hætti og hún er í löndunum í kringum okkur.

Ég vil líka fá að nefna að þessi ríkisstjórn lagði af stað í mikla vinnu og kallaði eftir aðstoð þjóðarinnar við hagræðingartillögur. Það hefur allt of mikill kostnaður verið í þessu kerfi, allt of mikil sóun og þess vegna tel ég að við getum náð niður kostnaði enn frekar í þessu kerfi en nú er. Ég ætla að hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þeim efnum og ég ætla að endurtaka það að að öllu óbreyttu þá mun ég styðja það frumvarp sem hér var mælt fyrir.