156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[14:04]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir ágæta ræðu en það var gott að heyra svona skýrari tón, hvað hún fagnaði þessu frumvarpi. Enn fremur þá ítreka ég það að þetta er ekkert viðkvæmt mál og á ekkert að vera viðkvæmt mál, nema þá mögulega fyrir klofinn Sjálfstæðisflokk. (Gripið fram í: Æi …) Það er alveg ljóst að þetta mál snýst aðeins um það að vísa hættulegum brotamönnum úr landi. Við eigum að geta talað um útlendingamál af sanngirni og virðingu og ekki af einhverri viðkvæmni, heldur gera það tæpitungulaust. Það er alveg ljóst að það hefur ekki verið eining í Sjálfstæðisflokknum þegar hefur komið að þessum málum (Gripið fram í.) og mér finnst rétt að benda á það. Það hefur ítrekað komið fram að flokkurinn er margklofinn (Gripið fram í.) í þessu máli og jafnvel fleirum. En ég vil undirstrika það hér að ég frábið mér leiðbeiningar frá hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur um hvað sé hæfilegt og hvað sé rétt að ræða úr þessum stóli því að ítrekað á liðnum vikum hefur hv. þingmaður gert að umtalsefni persónuleg mál samkeppnisaðila síns í pólitík, 35 ára gömul mál. Þá hefur hún komið hér upp í þennan ræðustól og verið að velta hér upp málum, persónulegum málum, sem mér finnst vera fyrir neðan allar hellur og ég spyr: Hefði t.d. Geir Hallgrímsson gert það, farið að velta hér pólitískum andstæðingi upp úr 35 ára gömlum persónulegum málum sem þegar betur var að gáð voru ekki mjög efnismikil? Hefði hann gert það? Eða okkar ágæti Bjarni Benediktsson (Forseti hringir.) sem hún tók við keflinu af? Ég efast um það. Þannig að, herra forseti, ég frábið mér svona leiðbeiningar (Forseti hringir.) um hvað sé hæfilegt og hvað sé ekki hæfilegt að ræða hér.