útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég hélt nú að við værum að ræða hér frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga en hv. þm. Sigurjón Þórðarson kýs að fara um víðan völl og mér heyrist ekki annað en að hann hafi mestar áhyggjur af því hvað Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn. Ég get bara upplýst hv. þingmann um það, og valdið honum þar með vonbrigðum, að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki klofinn, þó að hann dreymi þann draum greinilega, hv. þingmann. Og þegar hann talar um að ekki hafi verið eining innan Sjálfstæðisflokksins — hvaða þvæla er þetta? Ég held að hv. þingmaður ætti bara að fara í þingskjöl og sjá það að hér var þingflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, allur á þeim málum og þeim breytingum sem fyrrum ráðherrar flokksins hafa gert í þessum málaflokki. Vertu nú ekki að fara — ég held að hv. þingmaður eigi bara ekki að vera að fara með svona vitleysu. Þegar hann kemur hér upp, talar um að við séum margklofin í máli og fer síðan að brigsla mér um einhverjar árásir á fyrrum ráðherra Flokks fólksins og frábiður sér leiðbeiningar, þá segi ég: Ég frábið mér svona málflutning frá hv. þingmanni því að ég hef bara ekkert tjáð mig um það mál sem hann hóf hér að tjá sig um heldur hef ég talað um vinnulag og vinnubrögð í forsætisráðuneytinu. Ég hef bara aldrei tjáð mig um eitthvað annað. Ég hef tjáð mig um að það sé hugsanlegur trúnaðarbrestur hjá æðsta trúnaðarmanni þjóðarinnar, forsætisráðherra, að geta ekki haldið trúnaði um erindi einstaklings í samfélaginu sem leitar aðstoðar hjá forsætisráðherra. Ég hef ekki tjáð mig um nein önnur mál, hvort sem þau eru tíu ára, 15 ára eða 35 ára, bara alls ekki.