156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[14:17]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að gera miklar athugasemdir við þína stjórn en mér finnst hafa komið hér undir þessum lið fullyrðingar um að það sé einhver æsingur í gangi. Auðvitað er það ekki. Ég er alveg pollrólegur yfir þessu en vil bara benda vinum mínum í Sjálfstæðisflokknum nær og fjær á að menn breyta ekki sögunni. Það er bara þannig. Þetta mál sem við erum að ræða hér á sér sína sögu og Sjálfstæðismenn breyta því ekki eftir á eða kenna Vinstri grænum um það. Þetta er bara staðan. Þessu máli var ekki komið hérna í gegn og nú er ný ríkisstjórn að gera það og ég fagna því að þeir virðast svona í og með, stundum, geta glaðst í gegnum tárin.