útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú að koma hér upp og þakka þingmönnum fyrir góða umræðu um þetta mál sem ég tel vera mikilvægt. Þetta var eins og ég rakti í minni framsöguræðu mál sem var sérstaklega fjallað um í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, þ.e. um afturköllun verndar, og til viðbótar þessi 18 mánaða regla. Ég hefði einhvern veginn haldið að hér væru allar aðstæður til að hér gæti farið fram einhver eðlileg umræða um málið. (BHar: … að mestu leyti. ) Hefur að einhverju leyti verið eðlileg, já. Mér finnst fínt og ég geri engar athugasemdir við það að Sjálfstæðismenn séu að nota þetta púlt sem eitthvert sálusorgartæki og gera upp sína sjö ára hryggð en við hljótum að geta tekið svona mál til efnislegrar umræðu. Við hljótum að geta gert það.
Hérna eru tvær mikilvægar breytingar á ferðinni sem hafa mikla þýðingu, annars vegar skýr refsipólitísk skilaboð um það að alþjóðlega vernd ætlum við að veita í þágu þeirra sem á henni þurfa að halda. Við erum hins vegar ófeimin við að segja að þessi réttindi verði afturkölluð brjóti menn af sér alvarlega í íslensku samfélagi. Hin reglan er séríslensk og hefur kostað mikla fjármuni. Þeir munu sparast með því að við tökum þessa séríslensku reglu úr sambandi og þessum fjármunum verður hægt að verja til annarra brýnna verkefna. Nóg er af þeim í dómsmálaráðuneytinu en verkefnin eru fleiri. Innviðaskuldin er mikil eftir sjö ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins.
Ég var spurð af hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvort ég ætli að gera eitthvað með dvalarleyfin. Það er mjög skemmtilegt að geta sagt frá því að ég hef myndað hóp. Það er að fara af stað vinna um þau og verður send út tilkynning um það í dag eða á allra næstu dögum. Þarna er líka stórt verkefni fyrir höndum og ég mun fara í það rétt eins og ég að leggja fram þetta mál.
Ég hef verið spurð um brottfararúrræðin, hvar þau séu. Þau eru væntanleg í haust. Þar erum við að kippa úr sambandi annarri séríslenskri reglu sem er að við segjum: Flóttamenn eiga ekki heima í fangelsum. Það var stefna síðustu ríkisstjórnar. Þetta er í anda hugmyndafræði og stefnu flestra ríkja Evrópusambandsins og mér finnst betri bragur að því að búa til þessi brottfararúrræði.
Afturköllun verndar, fyrst við erum að nefna Evrópusambandið — fólk er nú að tala hér um klofning, Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í Evrópumálum en það er bara eins og það er. (Gripið fram í.) Evrópusambandið er að fara þá leið núna að kalla ekki aðeins eftir því að það sé heimilt að afturkalla vernd við þessar aðstæður heldur verði það skylda.
Virðulegi forseti. Verkefnið er skýrt. Nú hefur þessi ríkisstjórn setið í einhverja þrjá mánuði. Við erum komin fram hér með tvær veigamiklar lagabreytingar og ég vonast til þess að þetta mál geti unnist með eðlilegum hætti og þetta mál fái góða vinnu í allsherjar- og menntamálanefnd og verði að lögum.
Ég tók eftir því að hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um að hún vildi meira, við þyrftum að vinna hratt, við værum í sérstakri stöðu. Það er af ástæðu, hv. þingmaður. Það var þessi óeining sem gerði það að verkum að hér var kyrrstaðan algjör. Það er af ástæðu að við erum í þeirri stöðu sem við erum í. En þetta er gott mál, við ættum hér í þessum þingsal að geta rætt um það efnislega, tekið það inn í nefnd og gert það að lögum.