156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[14:28]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Ég veit ósköp vel hvernig atkvæðagreiðslan fór fram og hv. þingmaður þarf að fara rétt með þar um. Nú hefur það verið söguskýringin allan tímann að vandinn hafi verið VG, en þegar ég hlusta á umræðurnar hér og þennan kurr í salnum þá velti ég því fyrir mér hvort svo hafi verið. Hvað var eiginlega á seyði fyrst þetta eru viðbrögðin við jafn, ég ætla að segja átakalítilli breytingu og hér er verið að boða? En ég læt staðar numið.