156. löggjafarþing — 30. fundur,  10. apr. 2025.

útlendingar.

278. mál
[14:29]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst einkennilegt hvernig bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans eru að reyna einhvern veginn að endurskrifa söguna sér til hagsbóta. Ég var sá þingmaður sem sagði hér áðan, ég skal viðurkenna það, að að öllu óbreyttu muni ég samþykkja þetta frumvarp og það er bara sagt í ljósi þess að nú fer þetta frumvarp til nefndar og ég ætla að leyfa mér að skipta kannski um skoðun ef málið mun taka miklum breytingum í nefndinni, það er nú allur glæpurinn, í þeirri þinglegu meðferð sem er fram undan.

Hæstv. ráðherra talar hér um að afstaða margra hafi breyst í þessum málaflokki og er þá að tala til okkar Sjálfstæðismanna. Guð minn almáttugur, ef afstaða einhverra hefur breyst þá er það afstaða bæði þingmanna Viðreisnar og Samfylkingarinnar því þau studdu ekki málið í atkvæðagreiðslu eða þær breytingar sem hafa verið gerðar, hvorki í fyrra eða hittiðfyrra. Mig langar t.d. fá að nefna það, af því að hæstv. ráðherra talar hér mikið um að það hafi ekkert verið gert í þessum málaflokki, og minna á að í atkvæðagreiðslu síðasta vor kom breytingartillaga við frumvarpið frá Flokki fólksins varðandi heimild um að afturkalla vernd einstaklinga sem gerast sekir um alvarlega glæpi. Það var ekki hægt að samþykkja það vegna þess að tæknileg útfærsla var með þeim hætti frá hendi Flokks fólksins. Þá stóð þáverandi dómsmálaráðherra hér í þessari pontu og sagði: (Forseti hringir.) Við munum gera þessa breytingu. Við getum bara ekki gert það núna miðað við hvernig breytingartillaga Flokks fólksins lá. Þannig að ég ætla að biðja fólk hér um að fara rétt með.