útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið hér í mínu seinna andsvari og þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa sögustund sem hér hefur verið í dag. Ég ætla bara að minna á það aftur að rétt skal vera rétt. Ef hæstv. ráðherra telur að umræðan hafi einhvern veginn farið út um víðan völl þá fór hún út um víðan völl í boði ríkisstjórnarflokkanna því að hér kom þingmaður ríkisstjórnarflokkanna og fór að fara með dylgjur og vitleysu í ræðupúlti Alþingis og við höfum fundið okkur knúin hér, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, til að svara fyrir þá vitleysu sem hér er búið að bera á borð í boði hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, sem er jú í stjórnarliðinu. Ég tek undir með hæstv. ráðherra um að sú umræðu sem hér hefur farið bara í algjört rugl er í boði stjórnarflokkanna. Gjörið þið svo vel.
Ég ætla líka að fá að minna á það að þegar ég gegndi embætti dómsmálaráðherra þá talaði ég mjög mikið um það að við yrðum að koma á lokuðu brottfararúrræði vegna þess að við gætum ekki verið að vista fólk í fangelsum landsins sem hefur ekki neitt sér til saka unnið annað en það að fá synjun um alþjóðlega vernd. Og nú talar hæstv. ráðherra í þá veruna eins og hún sé að hefja þessa umræðu sem er beinlínis rangt því það vorum við Sjálfstæðismenn sem hófum hana.