156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

álitsgerð fjármálaráðs um nýtt verklag við fjármálaáætlun.

[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við gerð fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar var kynnt nýtt verklag sem átti að auka skýrleika, auka traust og koma til móts við athugasemdir fjármálaráðs. En þegar fjármálaráð gaf álit sitt á áætluninni kom annað í ljós. Gagnrýnin var afdráttarlaus. Ráðið benti á að skýrleiki hefði dregist saman, að upplýsingum væri ábótavant og að raungreiningar á áhrifum væru litlar sem engar. Þrátt fyrir þetta stóð hæstv. fjármálaráðherra í ræðustól á dögunum og hélt því fram að fjármálaáætlunin væri í samræmi við athugasemdir fjármálaráðs. Það stenst enga skoðun. Fjármálaráð gagnrýndi vinnubrögð ríkisstjórnarinnar harðlega og sagði berum orðum að viðmið nýju áætlunarinnar væru óljós, að fjárlagaáætlun næstu ára væri óskýr og að erfitt væri að lesa heildarniðurstöður út úr gögnunum. Hvað kallar maður það þegar ríkisstjórn segist gera betur en endar á því að gera verra og heldur því engu að síður fram að markmiðum sé náð? Hér er hreinlega verið að villa um fyrir þinginu og villa um fyrir almenningi. Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: Hvaða skilning leggur ráðherrann í álit fjármálaráðs og telur ráðherra að það sé verjandi að halda því fram í þingsal að markmið hafi náðst þegar eigið fagráð segir þvert á móti að þau hafi brugðist? Þegar trúverðugleiki tapast í fjármálastjórn ríkisins þá tapar allt samfélagið.