álitsgerð fjármálaráðs um nýtt verklag við fjármálaáætlun.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir hennar spurningu. Tilfellið er nú að sú athugasemd sem fjármálaráð kemur með í sínu áliti er ekki að koma fram í fyrsta skipti. Hún snýr að þeim veikleika sem fjármálaráð hefur ítrekað bent á, að mat þess einskorðast við fjármálastefnu og fjármálaáætlun en nær ekki til fjárlaga. Í fjárlögum er hin eiginlega útfærsla útgjaldanna. Auðvitað kemur til greina að ræða það í þessum sal hvort ástæða er til að gera breytingar á þessu. Það er skiljanlegt að fjármálaráð telji að fjármálaáætlun eins og hún er samkvæmt lögum innihaldi ekki þá upplausn á þá upplýsingum sem nægileg er til að fjármálaráð geti tekið afstöðu til ákvarðana, burt séð frá því að fjármálaáætlun er í eðlinu grófari áætlun heldur en fjárlögin eru. Þar kemur hin eiginlega útfærsla fram og það er sú ábending sem fjármálaráð er núna ítrekað að koma fram með.