156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

álitsgerð fjármálaráðs um nýtt verklag við gerð fjármálaáætlun.

[15:08]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svarið en staðreyndirnar liggja fyrir og maður spyr sig: Af hverju segir þá hæstv. fjármálaráðherra hér í ræðustól Alþingis að þetta hafi allt verið samkvæmt athugasemdum fjármálaráðs? Þessi gagnrýni fjármálaráðs er ekki einsdæmi heldur hluti af stærra mynstri. Við sjáum síendurtekið hvernig ríkisstjórnin kynnir stórmál án vandaðs undirbúnings, án raunverulegra greininga og án skýrrar upplýsingagjafar. Fjármálaáætlunin ber öll þessi einkenni. Hún er enn eitt dæmið um hvernig orð og athafnir fara sitt í hvora áttina. Það er einfalt að tala um verkstjórn þegar ekkert er vandað til verka en sú stjórnsýsla sem skilar ósamræmdum gögnum, dregur úr gagnsæi og forðast samráð er ekki styrkveiting til lýðræðisins heldur veikleiki í stjórnarháttum.

Því spyr ég hæstv. fjármálaráðherra: (Forseti hringir.) Hvernig ætlar ríkisstjórnin að endurheimta traust þegar hún lítur á (Forseti hringir.) faglega gagnrýni sem formsatriði en ekki sem áminningu um nauðsyn úrbóta?