álitsgerð fjármálaráðs um nýtt verklag við fjármálaáætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Nú kannast ég ekki við að traust hafi verið rýrt og ég brýni fyrir þeim þingmönnum sem eiga sæti í fjárlaganefnd að ganga á eftir því við fjármálaráð nákvæmlega hver þessi gagnrýni er og á hvaða grunni hún byggist. Eins og ég nefndi áðan kemur fram í þessu áliti fjármálaráðs að þetta snýr að því fyrirkomulagi sem verið hefur, að fjármálaráð veiti ekki umsagnir um fjárlög, einungis um fjármálaáætlun, þar sem upplausn upplýsinga er mun minni.