156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

staða leigubílstjóra við Leifsstöð.

[15:10]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Svokölluð opinber hlutafélög hafa reynst sérkennilegt fyrirbæri og ekki eins vel og lagt var upp með. Þau eiga það oft á hættu að verða eins konar ríki í ríkinu og nú er meira að segja búið að afnema lýðræðislegt aðhald með öllum þessum fyrirtækjum því hæstv. ráðherra skipar alla stjórnarmenn fyrirtækjanna með hliðsjón af tillögum sem nefnd sem hann sjálfur hefur valið leggur til. Eitt þessara fyrirtækja er Isavia sem er orðið það mikið ríki í ríkinu að það virðist hafa þróað með sér sína eigin menningu og er hálfilla við að íslenski fáninn fái að sjást í Leifsstöð. Þetta er með öðrum orðum orðið svona rétttrúnaðarríki í ríkinu, „woke“-ríki. Nýjustu fréttir af gangi mála hjá Isavia snúast um vandræði vegna leigubílaaksturs og það eru reyndar ekki nýjar fréttir að það séu vandræði á þeim bænum, sérstaklega eftir að ný lög tóku gildi um leigubíla. Það keyrði þó um þverbak núna fyrir fáeinum dögum þegar hópur leigubílstjóra, nýtilkominna í þessu nýja kerfi, tók yfir húsnæði í eigu Isavia, húsnæði í eigu ríkisins fyrir vikið, og meinaði öðrum aðgang að þessu húsi. Svör Isavia við þessu hafa verið heldur rýr. Það hefur ekki verið brugðist við í þessu tilviki frekar en að brugðist hafi verið við á tilhlýðilegan hátt í þessum leigubílamálum fram að þessu.

Þetta fyrirtæki og rekstur þess er á ábyrgð hæstv. ráðherra og sérvalinnar stjórnar hans. Því liggur beinast við að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hyggst hann bregðast við þessu máli og mun hann reyna að færa stefnuna hjá Isavia til betri vegar?