staða leigubílstjóra við Leifsstöð.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna. Nú er það þannig að stjórnir þessara fyrirtækja hafa alltaf verið skipaðar af ráðherra þannig að engin breyting er að verða þar á önnur en sú að eins og hv. þingmaður nefndi eru nú gerð skýr hæfisskilyrði og nefnd sem fer yfir þau.
Varðandi aðkomu ráðuneytisins að Isavia er hún ekki önnur og hefur ekki verið önnur en í gegnum eigendastefnu ríkisins. Fyrirtækið mun væntanlega taka þetta mál til skoðunar eins og önnur sem heyra undir það og það stendur ekki til að eigendastefna ríkisins innihaldi sérstakar klásúlur um notkun kaffiskúra.