156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

staða leigubílstjóra við Leifsstöð.

[15:13]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þetta svar jaðrar við að vera skætingur frá ráðherra sem stjórnar þessu fyrirtæki. Ábyrgðin er hjá honum. Hæstv. ráðherra þarf a.m.k. að segja skoðun sína um það hvort það sé tilefni til, eins og mér virðist vera augljóst, að hugað sé að eigendastefnunni því að ekki getur þetta gengið svona áfram, að það sé allt í lagi að einhverjir hópar taki yfir húsnæði í eigu fyrirtækis eða ríkisins. Þetta getur ekki gengið svona áfram. Ef Ásatrúarfélagið eða kristinn söfnuður hefði tekið hús ríkisins og meinað öðrum að nýta það á þann hátt sem hefði verið fram að því þá væri búið að bregðast við. En Isavia virðist vera smeykt við að taka á þessu máli og þá þarf ráðherrann að stíga inn í. Jú, við heyrðum það í fréttum í dag að menn ætli að leita til sérfræðings í fjölmenningu. Ef Ásatrúarfélagið hefði tekið yfir hús ríkisins, myndu menn leita til sérfræðings í heiðnum sið til þess að geta brugðist við? Þegar fyrirtæki stendur sig ekki betur í að taka á málum en þetta (Forseti hringir.) þá þarf ráðherrann sem ber ábyrgð á því fyrirtæki að bregðast við.