156. löggjafarþing — 31. fundur, 28. apr. 2025.
staða leigubílstjóra við Leifsstöð.
Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurningu hans. Hygg þó að ásatrú sé eins mikill partur af fjölmenningu eins og hver önnur trúarbrögð og sé ekki alveg málefnið sem það varðar. En svo ég taki það aftur fram þá ber félagið ábyrgð á nýtingu þessara eigna. Eigendastefna félagsins snýr að þeirri þjónustu sem félaginu er ætlað að veita og stjórn þess og stjórnendur munu taka ákvörðun í þessu máli eins og öðrum sem snúa að rekstri félagsins.