lækkun hagvaxtarspár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og áhrif á tekjuáætlun ríkissjóðs.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttir fyrir ágæta spurningu. Það hefur legið fyrir í dálítinn tíma að það myndi draga til tíðinda í ytri skilyrðum viðskipta Íslands við okkar viðskiptaríki og á þessu fóru fram allumfangsmiklar greiningar. Nú fór það svo að Ísland lenti í lægsta tollflokki Bandaríkjanna og mat sérfræðinga er að áhrifin, verði engar aðrar breytingar, séu ekki umtalsverð og raunar svo lítil að engin ástæða sé til endurskoðunar á tekjuspá ríkisins eða að ráðast í sérstakar aðgerðir. Það þýðir þó ekki að slíkar aðgerðir séu útilokaðar. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa boðið til samtals um framhald þessara aðgerða og það tækifæri munu íslensk stjórnvöld nýta sér, bjóðist það.