156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

lækkun hagvaxtarspár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og áhrif á tekjuáætlun ríkissjóðs.

[15:18]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef sérstakar áhyggjur af þessu máli, m.a. í samhengi við ferðaþjónustuna á Íslandi. Ég átta mig á því að hæstv. ráðherra talar hér um að greining hafi verið nefnd en það er samt ítrekað fjallað um það í bandarískum fjölmiðlum, í greiningum og öðru, að t.d. áhrif á ferðalög í Bandaríkjunum og erlendis komi til með að vera töluverð og við erum að taka á móti mikið af ferðamönnum frá Bandaríkjunum. Ég hef áhyggjur af þessum áhrifum, m.a. fyrir Suðurkjördæmi þar sem 80% ferðamanna fara í gegn og bara okkar hluta hér heilt yfir á Vesturlandi, Suðurlandi og auðvitað á landinu öllu.

Því spyr ég hæstv. ráðherra: Telur hann ekki þörf á því að skoða sérstaklega mögulegar og ólíkar sviðsmyndir fyrir ferðaþjónustuna? Í annan stað: Hvernig ætlum við að vera tilbúin? Áhrifin koma líklega ekki núna í sumar, (Forseti hringir.) flestir eru búnir að borga flug, heldur akkúrat ári síðar.