lækkun hagvaxtarspár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og áhrif á tekjuáætlun ríkissjóðs.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar ágætu spurningu. Það er hárrétt hjá henni að spurningar um þróun ferðaþjónustunnar á þessum tímum eru okkur mjög ofarlega í huga. Ástæðan er sú, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, að það er erfiðara að spá fyrir um hvernig sú atvinnugrein muni þróast. Það er vegna þess að hún er líka háð breytingum sem hafa orðið á hagvaxtarspá í Bandaríkjunum sem hefur, eins og hv. þingmaður benti á, dregist verulega saman, sem og lækkun á gengi bandaríkjadals gagnvart bæði íslensku krónunni og öðrum gjaldmiðlum sem mun auðvitað gera það að verkum að ferðalög til Íslands verða dýrari mælt í þeim gjaldmiðli. Það eru áhrif sem við erum að skoða. Við sjáum ekki alveg fyrir endann á þróuninni og eins og hv. þingmaður bendir réttilega á virðast fyrstu viðbrögð ekki vera eins mikil og við kannski óttuðumst. En það er fyllilega rétt að við þurfum að greina vandlega hvernig áhrifin eru á komandi árum.