strandveiðar.
Virðulegur forseti. Minnisblað sérfræðinga ríkisstjórnarinnar frá því í desember 2024 segir mjög skýrt að ef ríkisstjórnin ætlar að standa við það að tryggja mönnum 48 daga veiði á strandveiðum, miðað við að það séu 750 bátar og miðað við 70% nýtingu, þá þurfi um 20.000 tonn í strandveiðipottinn. Við skulum hafa það í huga að ráðherra hefur 10.000 tonn núna til umráða, en miðað við 750 báta og 70% nýtingu þarf um 20.000 tonn. Nú hafa 900 bátar sótt um leyfi til strandveiða, 900 bátar, og miðað við útreikninga sem byggja á útreikningum ráðuneytisins þá þarf hæstv. ráðherra líklega að punga út um 30.000 tonnum í strandveiðipottinn þetta árið, gæti alveg farið í 30.000 tonn. Þá er mín spurning til hæstv. ráðherra: Hvar ætlar hæstv. ráðherra að finna þessi 15.000–20.000 tonn sem upp á vantar í strandveiðipottinn? Og ef þau finnast ekki, ætlar þá ráðherra að stöðva veiðarnar þegar þær eru komnar í 10.000 tonn?