strandveiðar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt, nú er runninn út tímafresturinn sem strandveiðimenn höfðu til að sækja um leyfi. Það kom ánægjulega á óvart að það var mikil eftirspurn eftir þessu. Þið sem þekkið söguna vitið að þetta á rætur að rekja til fyrstu ára þessarar aldar þar sem Mannréttindadómstóll Evrópu gerði athugasemd við að kvótasetningin og það fyrirkomulag sem við vorum með vægi að atvinnufrelsi fólks. Þá var þetta fyrirkomulag sett á. Nú stendur yfir vinna hjá Fiskistofu við að fara yfir og athuga hversu mörg leyfin verða. Það er alveg rétt að miðað við þessar umsóknir má ætla að um töluverða nýliðun sé að ræða og það er hlutur sem við þurfum að bregðast við. Við munum setjast yfir það þegar Fiskistofa — og ég held reyndar að í þessum töluðu orðum eigi félagar mínir í atvinnuvegaráðuneytinu fund með Fiskistofu til að fara yfir stöðuna. Við munum í kjölfarið setjast yfir þau úrræði sem við höfum, sem eru annars vegar að tína til heimildir sem við höfum til staðar. Það má t.d. nefna hluti eins og að gefa út aflamark í sumargotssíldinni fyrr en undanfarin ár, nokkuð sem samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa t.d. óskað eftir og mun að sjálfsögðu ganga yfir þau líkt og þá sem eru í litla pottinum, og auka með því móti heimildir í strandveiðum. En það liggur alveg ljóst fyrir að við þurfum líka að horfa til þess hvort nauðsynlegt sé setja frekari girðingar til að tryggja sjálfbærni veiðanna. Þetta er viðfangsefnið sem við stöndum frammi fyrir. Við erum með nokkur atriði til skoðunar. Það þarf að bíða eftir því að við fáum endanlega tölu yfir fjölda báta en ég held að það sé alveg ástæða — því að ég veit að fyrrum kollegar hv. þingmanns innan stjórnar SFS hafa haft af því áhyggjur að það standi til hjá ráðherra að fara og breyta hlutföllum 5,3%-pottsins og þess stærri. (Forseti hringir.) Það stendur ekki til.