strandveiðar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þó að það hafi nú verið kannski svolítið þunnt af því að það er alveg greinilegt að það er ekki komin nein mynd á það hvar eigi að finna þessi 15.000–20.000 tonn. Það getur vel verið að það eigi að prenta einhvern smá kvóta með því að gefa út meiri síld. En það er alveg á hreinu, og ég held að það sé bara mjög gott að vita fyrir þá sem hyggjast núna fara á strandveiðar, að ríkisstjórnin er strand í þessu máli og getur ekki gefið út 15.000–20.000 tonn, getur ekki fundið þau af því að allar aðrar aflaheimildir sem falla núna undir 5,3% eru nú þegar bundnar í lögum eða í byggðakvóta, sértækum byggðakvóta og annað og því verður ekki hreyft.
Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, ég veit að þetta verður ábyggilega mikill höfuðverkur fyrir hæstv. ráðherra akkúrat núna: Hyggst hæstv. ráðherra koma á þessu þingi með breytingar á lögum um byggðakvóta og sértæka byggðakvóta til að auka heimildir í strandveiðipottinum?